Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Page 30

Eimreiðin - 01.09.1970, Page 30
Jólakarfan Smásaga eftir Johannes Kristiansen Það var á þeim góðu, gömlu dög um. — Stórhríðin hafði skollið á án þess að gera boð á undan sér. Ég sat á járnbrautarstöð í Norður-Jótlandi og beið eftir lest, sem ég ætlaði að komast með heim. Við höfum feng- ið tilkynningu um, að lestin yrði að minnsta kosti klukkustund á eft- ir áætlun. Úti fyrir æddi stormurinn og hríðin var svo dimm, að þeir, sem fóru eitthvað frá stöðinni, hurfu samstundis. Ég var í vondu skapi, því að það virtist mjög vafasamt, að ég næði heirn þennan dag. Og ég þráði kyrrð og frið heimilisins eftir að hafa verið í fyrirlestraferð í viku. Það mundi verða dásamlegt. Ég drakk einn kaffibolla og sat þarna í einu horninu og leit í bók. En meðan ég sat þarna, veitti ég eftirtekt manni og konu, sem sátu þarna skammt frá og drukku öl. Þau vöktu á sér athygli með því, að þau voru nokkuð hávær. Þau rifust út af einhverju. Þau voru tötralega klædd og útlit þeirra var draslaralegt. Einkum var útlit kon- unnar óvandað og það var ekkert guðsorð, sem hún lét sér um munn lara. Þessu lauk með því, að hún tæmdi ölglasið og fór. Maðurinn sat eftir niðurlútur yfir vindlingi og ölglasi. Ég virti svip lians fyrir mér. Hann var sljór og deyfðar- legur. Svo leit ég aftur í bókina. En hugurinn festist ekki við hana, og allt í einu opnaðist það fyrir mér, að það var eitthvað kunnulegt við andlit þessa manns. Ég reyndi að muna eftir honum. Ég hlaut að hafa liitt hann áður. Að síðustu áttaði ég mig á því, að hann hlaut að vera Kristinn, sonur Lárusar halta, skólabróðir minn úr barnaskóla. En það voru liðin 38 ár frá þeim tíma. Gat það verið hann? Ég leit á hönd hans. Ég mundi, að hann hafði vantað fremsta kögg- ulinn á löngutöng. Það stóð heima. Þetta lilaut að vera liann. Örlögin höfðu eflaust leikið hann hart. Ég fékk áhuga fyrir að heyra eitthvað um hann og lagði bókina frá mér. „Komdu sæll Kristinn,“ sagði ég. „Þú þekkir mig sennilega ekki aftur?“ Hann virti mig fyrir sér skiln- ingsvana. „Nei — er það — er það ...“ „Já, enginn annar. Það er langt síðan við liöfum sézt.“

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.