Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Page 31

Eimreiðin - 01.09.1970, Page 31
JÓLAKARFAN 175 Hann banð mér stólinn, sem kon- an sat á áður. „Ölglas,“ sagði hann, „til minn- ingar um gamla daga.“ „Nei, þökk fyrir. Ég hef nýlega drukkið kaffi. En lofaðu mér að gefa þér ölglas, meðan við spjöllum saman.“ Hann þáði boð mitt. Hann var ekki skrafhreyfinn. En það gat ég skilið, að hann hafði borist gegnum lífið, og örlögin höfðu leikið hann liart. Nú stund- aði hann þá vinnu sem til féllst í bænum. Hann var ekki kvæntur „Hún er aðeins til stundlegra nota,“ sagði hann, og kinkaði kolli til dyranna, sem konan liafði farið út um. Samtalið gekk stirt og við vorum hálf vandræðalegir hvor gagnvart öðrum. Eftir að ég hafði heyrt um hina eríiðu lífsbaráttu hans frá liðnum tímum, stóð ég upp til að kveðja hann. En þá sagði hann allt í einu og varð nú mælskur: „Já, auðvitað hefur allt gegið vel fyrir þér í líf- inu. Það var ekki við öðru að bú- ast. Þú fékkst þinar gjafir með þér að heiman. Ég fékk líka mín áhrif. En mín áhrif voru dapurleg án huggunar. Faðir þinn var merkur maður, og virtur af öllum. Faðir minn var veiklaður og aumingjalegur og all- ir hlógu að honum. Móðir þín var hraust, starfsöm og hamingjusöm. Móðir mín var heilsulaus. Hún hóstaði, þar til hún hóstaði upp úr sér lungunum. Svo var hún graf- in. Jenny litla systir mín tók líka veikina. Hún varð aðeins sex ára. Og pabbi — það þekkir þú“ Ég þekkti það. Ég rétti honum hendina. Hann beið aðeins með að taka í hana. Svo sagði hann eins og til að afsaka sig: „Nei, við höfum ólíka aðstöðu, þegar við lögðunr út í lífið. — En þökk fyrir spjallið! Það var gaman að sjá þig. Og að lokum: Ég hugsa stund- um um jólakörfuna frá móðnr þinni. Hún var alltaf dásamleg. Eina góða minningu á ég þó.“ Hann hló grófum lilátri. „Vertu sæll og góða ferð! Það er ekki ástæðulaus ósk í þessu veðri.“ Ég svaraði honunr með nokkrum ónrerkilegunr orðunr og fór. Þegar ég seinna sat í lestinni, sem braust áfranr að því takmarki, senr ég þráði: heinrilið, til konu og barna, var mér þnngt í skapi. Og minningarnar komu. Hann lrafði rétt fyrir sér. Við höfðum ólíka að- stöðu. Ég kom frá góðu, traustu heimili, þar sem allt gekk eftir föstunr reglunr. Hann þekkti að- eins söknuð, neyð og eynrd. . . . Við áttum samleið heinr úr skól- anunr. Eftir að við komunr lreim til mín, hélt hann áfranr lengra út á heiðina, þar var heimili lrans langt í burtu milli heiðaásanna. Ég stóð stundum og horfði á eftir lronunr, þegar hann hélt út á lieið- ina, og stundum varð nrér að hugsa: Það er gott, að ég er ekki í lians sporum! Hann var í blettótt- unr og tötralegum fötunr. Ég átti falleg skólaföt, og hafði fataskipti, þegar ég kom lreinr og fór í vinnu-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.