Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Side 35

Eimreiðin - 01.09.1970, Side 35
JÓLAKARFAN 179 mömmu batnar bráðum," sagði hún við brúðuna. Ég þekkti ekki sjálfan mig. Mig sveið í augun og tárin læddust fram. Aldrei hafði ég gert mér i liugarlund, að nokkur ætti svona bágt. Ég vildi fara heim. Ég gat ekki þolað þetta lengur. En þessu var ekki lokið. Ég gekk út í dyrnar og ætlaði að kveðja. „Ég átti að heilsa að heiman,“ sagði ég. Konan sneri sér að mér og liorfði á mig með heitu augnaráði. „Já, já,“ sagði lnin og dró and- ann þungt. „Þú átt góða foreldra. Lárus er úti að sækja eitthvað til hátíðarinnar." Rödd hennar titraði. „Heilsaðu heim með ósk um gleðileg ....“ Lengra komst hún ekki. Hún tók um andlitið og grét. Ég stóð kyrr óttasleginn og vissi ekki hvað ég ætti að gera. En þá kom barnið aftur að rúm- inu. „Mamma ekki gráta, mamma ekki gráta,“ sagði hún, en var sjálf raeð grátinn í kverkunum. „Bráð- um jólin. Mamma glöð.“ Nú gat ég ekki heklur haft stjórn á mér lengur. Ég gekk út að glugg- anum, til að skýla tárunum. En á siimu stundu kom Lárus halti inn í herbergið. Hann hafði poka á bakinu. Barnið þaut á móti lionum. Það hafði gleymt mömmu og hennar sorg. „Pabbi,“ lirópaði liún. „Pabbi með jólakerti, jólakerti." „Já, já,“ svaraði hann. „Jóla- kerti og margt annað gott.“ Hann leggur pokann á gólfið og og barnið fer að leita í honum. Konan fær vald yfir sér aftur. „Hvað sagði læknirinn." „Hann kemur í fyrramálið." Lárus lítur ekki á hana en snýr sér að mér, sem er að láta á mig vettlingana. En konan leitar eftir tilliti hans eins og hún vilji lesa hugsanirnar. „Jæja þá er það í lagi,“ segir hún. Þá snýr maðurinn sér að kon- unni brosandi: „Já, fyrst að lækn- irinn kemur.“ Ég kvaddi. En áður en ég fór út úr dyrunum, kom sú litla til mín og sýndi mér kertapakka, sem hún hafði fundið í pokanum. Það var fögnuður í rómnum, eins og hún hefð'i eignast alla heimsins dýrð, þegar hún lirópaði: „Jólakerti, Jólakerti." Ég reyndi að brosa til hennar og lokaði dyrunum á eftir mér. Nú ætlaði ég heim. Ég var rnjög þreytt- ur. En eitt atvik átti enn eftir að bætast við úr heimi eymdarinnar. Úr ganginum voru dyr fram í fjósið. Dyrnar voru opnar, og ég leit inn um leið og ég gekk fram hjá. í fjósinu sat Kristinn á hálm- knippi. Hann var með höfuðið í gaupnum sér og horfði niður í tröðina. Ég man þetta svo vel. Ég sagði ekki neitt við skólabróð- ur minn, en gekk hljóðlega út úr dyrunum. En mér varð það um-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.