Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Page 59

Eimreiðin - 01.09.1970, Page 59
JAKOB KRISTINSSON 203 um til hungurs eftir því að spjalla við mann, sem hefði einhver samskonar hugðarmál og eg. Til þessa hungurs hafði eg aldrei fyrr fundið, svo að mig reki minni til.“ Næsta vetur, 6. febrúar 1946, stofnuðu þau síra jakob og Ingi- björg Tryggvadóttir til hjúskapar. Var hún ættuð frá Halldórsstöð- um í Bárðardal, dóttir Tryggva Valdimarssonar, bónda þar, síðar í Engidal, og Maríu Tómasdóttur, konu hans, alsystir Tómasar lieit- ins jarðfræðings og þeirra systkina. Var sambúð þeirra Ingibjargar og Jakobs svo ástúðleg sem framast verður á kosið. Settust þau að í Reykjavík, sama árið og þau voru gefin saman, leigðu sér fyrst litla íbúð á efstu hæð í húsinu Bárugötu 7, en reistu síðan hús í félagi við Tómas bróður Ingibjargar að Nökkvavogi 26, og bjuggu þar upp frá því, þangað til síra Jakob andaðist 11. júlí 1965. Á sumrin munu þau þó hafa dvalizt alloft og stundum nokkuð lengi norður í Bárðardal á æskuslóðum Ingibjargar og unað því vel. Eg sé t. d. í bréfi til mín frá síra Jakob, dagsettu að Bárugötu 7, 19. ágúst 1947, að honum haía farizt orð á þessa leið:; „Við hjónin nut- um vel norðurdvaíarinnar og sólskins og sunnangolu í Bárðardal, því að þar vorum við lengst. Og af okkur er allt gott að frétta, og vona eg að þú og þínir hafi sömu sögu að segja: að ykkur líði vel.“ Að undanförnu hef ég ekki hlífzt við að vitna í bréf síra Jakobs til mín á þeim árum ævi lians, er hann var fræðslumálastjóri og næstu árin þar á eftir, bæði af því að þær tilvitnanir lýsa honum vel og eins vegna hins, að þær skýra orsakir breytinganna á högum hans þessi tímabil. Skal þeim tilvitnunum nú að mestu lokið. Þó tel ég rétt, samhengis vegna, að gripið sé enn til eins bréfs frá honum. Það er skrifað að Bárugötu 7 1. marz 1948. í því segir svo meðal annars: „Þú minnist á, að eg gefi út eitthvað af þeim erindum, sem eg hefi flutt. Mér hefir dottið í hug að gera það, en þar verður mér sá vandi á höndum, að eg hefi ekki ritað nema fá þeirra, en haft aðeins punkta þegar eg flutti þau. En Jrótt eg hafi að vísu fundið sumt af punkt- um þessum, eru Jreir mér nú alveg ófullnægjandi. Eg hefi Jiess vegna lítið til að láta prenta og það, sem eg hefi skrifað, finnst mer nú þannig, að ekki verði komizt lijá að breyta því meira og minna. En slíkar breytingar eru venjulega örðugar viðfangs og spilla stundnm heildinni fremur en bæta. Samt hefi eg Jretta í huga, að láta eitt- livað koma út .“ Loks eltir nálega aldarfjórðung, frá því að Jretta bréf var skrifað,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.