Eimreiðin - 01.09.1970, Side 60
204
EIMREIÐIN
hefur nú þessi hugmynd komizt í framkvæmd. Vel sé öllum þeim,
sem að því hafa unnið, fyrst og fremst frú Ingibjörgu Trygg-vadótt-
ur, er mun liafa haft um það forgöngu, en einnig útgefandanum og
þeim, sem valið hafa í bókína, og er það allt af lröndum innt með
alúð og smekkvísi.
Vaxtarvonir eru í einu orði sagt gersemisbók, þrungin mannviti,
góðvild og þeim heilræðum, sem eru jafnt ungum sem gömlum
mannbætandi að lesa. Hún sameinar allt í senn: kjarnmikinn stíl,
speki og svo einstaka hjartahlýju og bróðurkærleika, að lesandanum
blátt áfram birtir fyrir augum við lestur hennar. í henni er svo mik-
ið af umbótahuga og trú á lífið, að ég held, að hún sé eitthvert bezta
læknislyf særðri sál og sjúku lijarta, er hugsast getur. Þar er lögð svo
mikil áherzla á að bæta og fegra mannlífið, ávaxta hin sönnu verð-
mæti þess, að með eindæmum má teljast í bókagerð á þessari fíkni-
lyfja-, fjárplógs- og efnishyggjuöfd.
Smám saman lief ég nefnt flestar af ræðum og ritgerðum bókar-
innar. Þær eru að vísu ekki allar jafnsnilldarlegar að efni og bún-
ingi, en hefur þó hver til síns ágætis nokkuð, og margar þeirra mikið.
Ég hef það eitt út á Vaxtarvonir að setja, að ég hefði kosið þær
þriðjungi eða tvöfalt viðameiri. Einkum sakna ég efnis frá því skeiði
af ævi síra Jakobs, er nefna má sumaraukann í líli hans, það er tím-
anum, eftir að hann lét af skyldustörfum og kvæntist í annað sinn.
VII.
Áður er nokkuð að því vikið, hvílíkt yndi síra Jakob halði af að
ræða um bókmenntir og skáldskap, enda var hann mikill smekkmað-
ur á þá hluti. Sést það vel af þeim ritgerðum, sem eftir hann figgja
um íslenzk skáld og rithöfunda. Af þeim eru þrjár í Vaxtarvon-
um: greinarnar um Sigurð Kristófer Pétursson rithöfund, Harald
Níelsson prófessor og Guðmund Guðmundsson skáld. Hefur grein-
in um Kristófer fengið mjög góða einkunn hjá ritdómendum. En
mér finnst ritgerðin um Guðmund skólaskáld ekki síðri. Man ég
ekki til, að nokkur hafi skrifað af svo nærfærnum skilningi og
skarpri dómgreind um þennan söngvasvan sem einmitt síra Jakob,
nema ef ti! vilf Gretar Fells rithöfundur: Fylgt úr hlaði, formáls-
orð fyrir Ljóðasafni Guðmundar. En miklu er grein síra Jakobs
fyllri, þó að formálsorð Gretars séu ágæt, svo langt sem jvau ná.
Þá er að nefna vandaðar og viðamiklar ritgerðir um sama eða svip-