Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 64
Auglýsing um samkeppni vegna 1100 ára afmælis
íslandsbyggðar
HÁTÍÐARLJÓÐ
Þjóðhátíðarnefnd 1974 efnir til samkeppni um hátíðarljóð eða
Ijóðaflokk til söngs og flutnings við hátíðarhöld á 1100 ára afmæli
íslandsbyggðar. Skila þarf handritum til Þjóðhátíðarnefndar 1974,
skrifstofu Alþingis, fyrir 1. marz 1973.
Ganga skal frá handriti í lokuðu umslagi, merktu kjörorði, en
nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu, ógagnsæju umslagi, merktu
sama kjörorði og handrit.
Ein verðlaun verða veitt fyrir bezta Ijóðið, að mati dómnefndar,
að upphæð
150 þúsund krónur
Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfundar, en Þjóð-
hátíðarnefnd áskilur sér umráðarétt yfir verðlaunuðu efni gegn
greiðslu.
Telji dómnefnd ekkert þeirra verka, sem berast, verðlaunhæft,
fellur verðlaunveiting niður.
Dómnefnd skipa Andrés Björnsson útvarpsstjóri, dr. Einar Ólafur
Sveinsson prófessor, Kristján Karlsson bókmenntafræðingur, dr.
Steingrímur J. Þorsteinsson prófessor og Sveinn Skorri Höskulds-
son prófessor.
Þegar úrslit hafa verið kunngjörð, geta keppendur látið vitja
verka sinna hjá Þjóðhátíðarnefnd. Verða þá jafnframt afhent óopn-
uð umslög með nafni og heimilisfangi, eins og kjörorð á handriti
segir til um.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND 1974