Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 4

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 4
146 ÆGIR verðuí fyrir þessum námskeiðum, enda er þörfin svo auðsjeð, og ættu þessi nám- skeið því að geta bætt úr einhverju því sem áður hefur miður farið. En æski- legt væri að verklega kenslan gæti verið að mun meiri. í Vestmannaeyjum eru nú um 60 mólorbátar, og 6 nýjir, stórir og fallegir bátar bætast við i vetur. Yestmanna- ej^jar eru nú stærsti mótorbátaútgerðar- staðurinn á landinu, enda eru það mikil auðæfl, sem þangað berast að landi þeg- ar vel lætur. Vátrygging fiskiskipa. (Útdráttur úr reglugjörö 22. jan. 1910, fyrir Samábyrgö íslands á fiskiskipa). Vátryggingarkjör og skaðabótaskiiyrði. 8. gr. í samábyrðina má taka: A. íslensk ábyrgðarfjelög báta og skipa, sem hafa lög sín staðfest af stjórnarráði íslands. Þó mega regluleg ársiðgjöld i félögum þessum fyrir skip, sem vátryggja á i Samábyrgðinni, ekki fara niður úr 3°/« af vátryg'gingarfjenu. Fyrir hvert skip skal ennfremur greiða i varasjóð i reikn- ing skipsins um leið og það er vátrygt í Samábyrg'ðinni 1% af válryggingarfjenu; en fjárhæð þessi greiðist aftur sem upp- bót, þegar skipið gengur úr vátryggingu, ef það hefir enga skaðabótakröfu gert, sem Samábyrðinni ber að svara til, með- an það var vátrygt. Milli Samábyrgðarinnar og fjelags, sem óskar að verða meðlimur hennar, skal gera samning um þau sérslaklegu skil- yrði, sem sett eru fyrir töku þess í Sam- ábyrgðina. Þó má ekkert i slíkum samn- ingi koma i bága við reglugjörð þessa. Ef samningnum er ekki sagt upp fyrir 1. október, telst hann endurnýjaður fyrir næsta ár. Eigendur hinna vátrvgðu skipa og Sam- ábyrgðin hafa engin viðskifti, því að á- byrgðarfjelögin koma ein fram bæði gagn- vart eigendunum og Samábyrgðinni. Samábyrgðin tekur að sjer þann hluta af áhættunni á skipum, vátrygðum i ís- lenskum ábyrgðarfjelögum, sem fer fram úr því, er fjelög þessi samkvæmt lögum sínum mega sjálf taka ábyrgð á, og þvi, sem þau krefjast sjálfsábyrgðar á. Skylt er ábyrgðarfjelögum þeim, sem eru með- limir Samábyrgðarinnar, að láta henni í tje þenna hluta áhættunnar og Samábyrgð- inni að taka við honum. Svo fljótt sem unt er skal senda Sam- ábyrgðinni skýrslur um ábyrgðir þær, sem fluttar eru yfir til hennar, og skal það í síðasta lagi gert 4 vikum eftir byrjun vátryggingarársins, en siðan viku- lega. Skýrslur þessar skal rita á endur- tryggingarskrár, sem til þess eru ætlaðar. Afrit af ábyrgðarskírteinum og virð-' ingargjörðum skal senda samábyrgðinni svo fljótt sem unt er. Hvert ábyrgðarfjelag um sig fram- kvæmir sjálft alt það, er lýtur að upp- töku skipa til vátryggingar og virðingu þeirra og ber sjálft allan þann kostnað, sem af því leiðir. Kostnaðurinn við sljórn ábyrgðarfjeiaga þessara er Samábyrðinni og algerlega óviðkomandi. Til grundvallar fyrir hverri vátrygg- ingu skal leggja vátryggingarkjör og skaðabótaregiur hinna einstöku ábyrgð- arfjelaga, þar sem það ekki kemur í bága við reglugerð þessa eða ákvæði þau, sem sett eru samkvæmt henni. Sam- ábyrgðin er bundin við lög ábyrgðarfje- laga þeirra, sem eru meðlimir hennar, og framkomu fjelaganna samkvæmt lög- unum. Þó skulu fjelögin fá samþykki Samábyrgðarinnar lil þess að höfða mál

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.