Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 19

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 19
ÆGIR 161 Kríngum land. Föstudaginn 8. október lagði jeg af stað frá Reykjavík með Botniu, sem þá fór vestur og norður um land til út- landa. Var ferðinni einkum heitið til Siglufjarðar og Eyjafjarðar. Siðastliðið vor hafði eg margsinnis reynt að komast þangað norður, en lenti ávalt i is og varð svo að hætta að síð- ustu, með því að þá feið að þingi. Botnía kom við á Isafirði, en hafði þar stutta dvöl; kom þangað ld. 11 f. hd. 9. okt. og lagði þaðan af stað kl. 5 í. hd. hinn 10. Til Reykjarfjarðar komum vjer um kl. 2 e. hd. Jeg hafði einsett mjer, að svo miklu leyti, sem svo stutt viðdvöl leyfði, að kynna mjer, að hve miklu leyti Reykjar- ljörður væri fallinn til síldveiði. Jeg var þar þvi alflengi í landi og gekk nokkuð út með firðinum sunnanmegin. Skamt utan við kauptúnið eru síld- veiðahús og hafskipabryggja sem er eign Norðmanns nokkurs, er Sakse heitir. Eru nokkur ár síðan hann tók lóð þarna á leigu og bygði þar hús og bryggju. Rak hann þar síldveiði eítt eða tvö ár en mishepnaðist og varð að hætta, enda mun hann eigi hafa verið fjáður maður. Hefur hann nú hin síðari árin leigt húsið fyrir verbúð, sjómönnum úr ýmsum átt- um, einkum frá ísafjarðardjúpi, sem hin siðari ár hafa stundað fiskiveiðar við Reykjarfjörð um sumarmánuðina og heppnast vel að jafnaði. Reykjarfjörður virðist sjerlega vel fall- inn til sildveiða. Hann má heita allur ein höfn og á mörgum stöðum er að- djúpt og þyrfti því eigi langar bryggjur. Við síldveiðistöð Sakse, sem áður er nefnd er bryggjan eigi 6 melra löng fram og er þó um 4 metra dýpi við hana um fjöru. Væri hún lengd fram um 4 melra, mundi fást alt að 10 metra dýpi við hana, um háfjöru. Mismunurinn á flóði og fjöru er ekki, eftir þvi sem mjer var sagt, yfir 2 metra og er það mikill og góður kostur. Aftur hefur Reykjarfjörður þann mikla ókost, sem sildveiðistöð, að þangað ligg- ur enn enginn sími, en án hans er sild- veiðistöð því nær ómöguleg. Er bráð nauðsyn að bæta sem fyrst úr þeim galla, enda eigi mjög dýrt né erfitt að tefigj3 þangað síma frá Hólmavik, yfir svo ka.llaða Trékyllisheiði og ætti þá sú simaálma að ná til Norðfjarðar. Naumast mun koma það ár að fjörð- urinn eigi fyllist af síld og stendur hún þar alllengi. Þá er ílóinn utan við fjörðinn eigi síð- ur sildarsæll. Á mörgum stöðum við fjörðinn er fult svo auðvelt að gera hafskipahryggjur og þar sem Sakse valdi sér stöð og ör- skamt fyrir utan stöð Sakses, er jafnvel enn betri staður. Oft kemur hafís að vísu inn á Reykj- arfjörð, en litil eða engin hætta á að hann skemmi bryggjur, því þannig hag- ar til, að fram í fjörðinn ganga kletta- raðir með vogum inn á milli. Hlifa klettaraðirnar fyrir ísnum. Aðalveiðistöðin er á Gjögrum yst við fjörðinn, að norðan. Hefur sú veiðistöð um langan aldur verið mjög fiskisæl og þaðan hefur komið bestur hákarl hjer á landi að Sigluneshákarli ólöstuðum. Eigi er langt frá kauptúninu (Kúvik- um) út að Gjögrum, liklega um 1 klukku- stundar róður i logni, en eigi gat jeg þó komið því við að fara þangað, meðan skipið stóð við, og langaði mig þó að eiga þar tal við menn. Jeg skrifaði því gömlum kunningja

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.