Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 8

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 8
150 ÆGIR Ef báturinn verður fyrir sætjóni, er ónýtingarúrskurður um bátinn eða mót- orinn því að eins bindandi fyrtr Sam- ábyrgðina, að verð bátsins eða mótors- ins að viðbættum v ðgerðarkostnaðinum fari fram úr vátryggingarfjenu, sem á- kveðið er i vátryggingarskirteininu fyrir bátinn eða mótorinn, og Samábyrgðin áskilur sjer rjett til, ef annað»vort bát- urinn eða mótorinn verður íyrir ón)d- ingarúrskurði, að setja annan nýjan i staðinn. 12. gr. Þá er um algerðan skiptapa er að ræða, en þá eru skaðabæturnar alt válryggingarfjeð að frádregnu verði þess, er bjargað kynni að hafa verið, ber þeim vátryggjanda að láta við móttöku skaðabótanna af hendi við Samábyrgð- ina vátryggingarskírteinið kvittað með öll- um þess rjettindum. Þegar skaðabætur eru aftur á móti að eins greiddar fyrir nokkurn hluta og vá- tryggingarskírteinið gildir áfram fyrir þann tima, sem til var ætlast, er gefin sjerstök kvittun fyrir móttöku skaðabót- anna. F)rrir gufuskip og seglskip gilda þeir frestir fyrir afsölun þeirra i hendur vá- tryggingarfjelaganna gegn greiðslu vá- tryggingarfjársins (abandonfrister), sem á hverjum tíma eru ákveðnir i ábyrgðar- skírteinum sjóvátryggingarfjelaganna í Kaupmannahöfn. Fyrir önnur skip er ákveðinn 3 mánaða frestur. Ef um árekstur er að ræða, er vá- tryggjandi skyldur til að gefa Samábyrgð- inni umboð til þess fyrir sina hönd að skjóta því til úrskurðar dómstólanna, hver eigi að greiða skaðabæturnar. Tjón, er eigi nemur 2% af tryggingar- fjárhæðinni, verður eigi bætt, nema það fari fram úr 300 kr. á einstöku fari eða verðmæti hefur verið lagt í sölurnar af hálfu vátryggjanda til þess að komast hjá meiru tjóni, eða bjarga öðrum eig- um vátrygðum i Samábyrgðinni. Frá skaðabótunum skal ætíð draga 2°/o af tryggingarfjárhæðinni, en þó eigi yfir 300 kr. Ef það sannast, að skipstjóri hafi af ásettu ráði eða fyrir vitavert hirðuleysi valdið tjóninu, má draga alt að því 20% af skaðabótafjenu. Hafi vátryggjandi í sviksamlegum tilgangi tvitrygt hið sama eða hafi hann gerst valdur að tjóni af ásettu ráði eða fyrir vitavert hirðuleysi, er Samábyrgðin laus allra mála um skaðabótaskyldu. Þó skal Samábyrgðin ávalt skyld að greiða svo mikið af skaða- bótunum, sem þarf til að greiða lán af almannafje, þar með talin lán úr is- lenskum bönkum og sparisjóðum, er veitt hafa verið gegn veði i skipinu eða bátnum, þó er eigi skylt að greiða meira en nemi s/5 tryggingarfjárhæðarinnar, og á Samábyrgðin þá endurgjaldskröfu á hendur þeim, sem sekur er. Þá er reiknaðar eru út skaðabætur fyrir bilun á seglskipum, skal draga frá fyrir fyrningu: a. Fyrir bilun á skipskroknum: 1) Þegar skipið er 1—6 ára gamaltVo 2) Þegar skipið er eldra en 6 ára % b. Fyrir bilun á mótorum ásamt vindum, skrúfu og öðrum vjela- útbúnaði, er þeim fylgir:j 1) Þegar vjelaumbúuaðurinn er 1—2 ára gamall .............Vs 2) Þegar hann eldri en 2 ára.. V3 c. Fyrir bilun á mótorkænum, er fylgja þilskipum: 1) Þegar mótorkænan er 1—2 ára gömul ................... V5 2) Þegar hún er eldri en 2 ára... V5 d. Fyrir bilun á seglum, köðlum, mótorlausum skipsbátum og öðr- um skipsbúnaði ................V3 Þó er ekkert dregið frá ,ef um ak-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.