Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 20

Ægir - 01.11.1915, Blaðsíða 20
162 ÆGIR minum, Jakob J. Thórarsen, sem er út- vegsbóndi þar o<> fór þess á leit við hann, að hann stofnaði þar fiskiijelagsdeild. Þóltist jeg sjá, að þar væri mikil þörf fjelagsskapar meðal sjómanna. Eftir að jeg kom hingað til Re)>kja- vikur fjekk jeg svo brjef frá hr. Jakob dags. 1. nóv. og tilkynnir liann mjer, að hann hafi kallað saman fund 30. okt. og að á þeim fundi hafi verið stofnuð deild með 12 meðlimum. Segir hann undirtektir hafa verið mjög góðar og væntir þess að deildinni bætist fleiri meðlimir áður en langt liður ogað hún verði hjeraðinu að gagni. Er brjef Jakobs vel þess vert, að það væri birt í heild sinni, en eigi mun það gert án leyfis hans. Frá Reykjarfirði hjelt Botnía til Blöndu- óss. Var þar títil viðdvöl, enda ekkert fyrir mig að gera þar, því þar alls eng- inn sjávarútvegur. Frá Btönduós var haldið til Skaga- strandar. Á Skagaströnd er nokkur vélab itaút- gerð. Eigi gat eg’ haldið þar fund vegna þess hve stutt var staðið við. Fært virðist að gera allgóða höfn fyrir smærri skip, á Skagaströnd Mun og minnast á það einhvern tíma seinna. Frá Skagaströnd var haldið til Sauðár- króks. Þar lágum vjer að eins yfir svart- nællið og hjeldnm svo lil Siglufjarðar. Þegar lil Siglufjarðar kom var Botnia orðin 3 dögum undan áætlun og er slíkt óvenjulegt, en hún hafði líka óvenjulega rúma áætlun að þessu sinni. Alla þessa þrjá daga lágum við á Sigluíirði, án þess eg t æti nokkuð að- hafst nnnað en oð sjá mig um i kaup- túninu og leita ýmsra upplýsinga. Or- sökin til þess, að jeg eigi gat haldið fund að því sinni var sú, að allir voru önn- um kafnir við útskipun á lýsi og sild og að allur þorri útgerðarmanna var fjarverandi, inni á Akureyri. Höfðu þeir íarið með Pollux og ætluðu að koma aftur með Goðafossi. sem þá var von á hverri stundu. Jeg rjeð því af að halda með Botníu til Akureyrar og kom svo þangað um kl. 10 f. hád. 15. október. Daginn eítir fór jeg svo með Goðafossi til Siglufjarð- ar. Lögðum vjer frá Akureyri um kl. 11 e. hád. og komum til Siglufjarðar um kl. 5 f. hád. sunnudag 17. október. Þann dag var ekki hægt að koma fundi á, með þvi að menn voru þreyttir eflir ferðina og urðu þess utan að sinna .skipinu. (Frh.) Nýr innlendur iðnaður. Hr. Sigurjón Pjetursson, fyrrum verk- sljóri hjá kaupm. Th. Thorsteinsson, er nýkominn frá útlöndum og hefur nú sett á stofn hina fyrstu færaspunaverk- smiðju á íslandi, síöan Skúla fógeta leið. Hann hefur valið hina rjettu leið til þess að kynna sjer færasnúning, er hann fór til Hollands. Frá alda öðli hefur sú atvinnugrein verið stunduð þar og verið i blóma, og færi, og það er til veiða út- heimtist, er í mjög miklu áliti um allan beim. Kemur þetta fyrirtæki og ferðalag sjer vel, einkum nú, þar sem eigi er annað fyrirsjáanlegt, en að örðugt muni verða að afla veiðarfæra hingað til lands meðan á ófriðnum stendur. Sigurjón veitir nú atvinnu 30 manns, við neta- gjörð og færaspuna. Ættu menn að láta hr. Sigurjón Pjetursson njóta þess, að hann hefur komið færaspuna og neta- gjörð á, og leitt þá atvinnugrein inn í landið. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.