Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1915, Page 9

Ægir - 01.11.1915, Page 9
ÆGIR 151 keri er að ræða, ef skaðabætur eru á annað borð greiddar fyrir þau (sjá síðar). e. Fyrir bilun á siglutrjám og siglu- yiðum, þegar þau eru meira en 2 ára gömul.....................7s f. Fyrir bilun á festum og bátsdrek- um.............................. 7« g. Fyrir bilun á málningu og gyllingu */s Við útreikning skaðabótanna fyrir bil- anir þær, sem nefndar eru í stafliðunum a, b og c, er aldur skipsins talinn frá þeim degi, er það i fyrsla sinn hóf sigl- ingu, og aldur mótorsins og vjelaum- búnaðs þess, er honum fylgir, frá þeim degi, er mótorinn var settur nýr i skipið. Ef mótorinn hefir ekki verið nýr, þegar hann var seltur i skipið, verður að taka það skýrt fram og skýra frá aldri hans i virðingarvottorðinu, sem lagl ertilgrund- vallar fyrir vátryggingunni. Fyrir bilun á skipsskrokknum, er staf- ar af ofviðri úli á rúmsjó, eru aðeins greiddar skaðabætur að 3/s hlutum, eftir að frádráttur sá hefur verið gerður, sem nefndar eru í staílið a. Frá skaðabótafjárhæðinni er ávall dreg- ið það verðmæti, sem liggur i hinum biluðu munum, eins og þeir eru. Lækknn sú, sem reglugerðin fyrirskip- ar að gera á skaðabótum fyrir bilun á skipsskrokknum (7e) og fvrir bilun á siglutrjám og sigluviðum (7s), fellur niður fyrstu 5 árin við þan skíp, sem hafa verið flokkuð eða fengið vottorð um að smið þeirra hafl verið háð eftir- liti, sem Samábyrgðin hefur tekið gilt. Fyrir leka skal einungis greiða skaða- bætur þá er hann stafar af því, að skipið hefur rekist á, nema um sameiginlegt sætjón (havari grosse) sje að ræða. Fyrir botnmálningu, sem er eldri en 6 mánaða, greiðast einungis hálfar skaða- bætur, en fyrir botnmálningu sem eldri er en 1 árs, greiðast engar skaðabætur. Þá er batur þilskips, hvort sem hann er með mótor eða ekki, bilar eða ferst eftir að úl úr höfn er komið, verður tjónið einnngis bætt, ef það hefur að borið annaðhvort meðan báturinn var reyrður á þilfari eða hengdur upp undir bjálka eða meðan verið var að nota hann til fiskiveiða (t. d. til þess að flytja eða sækja veiðarfærin). Aftur á móli er báturinn ekki vátrygður, þegar fiski er hætt og hann liggur ónotaður við skipið, og heldur ekki þegar hann er hafður í eftirdragi á siglingu. Ennfremur er það skýlaust ákveðið, að fyrir tjón það, sem kann að verða á bátnum, meðan verið er að draga hann upp i skipið, verða ekki greiddar skaðabætur, nema bátur- inn sje dreginn upp jafnskjótt sem búið er að nota hann. Um sldp, sem klædd eru að utan með málmþynnum, er það ákveðið, að málm- þynnuleggingin skuli vátrygð með, svo að allar þær skemdir, sem á henni kunna að verða, eru Samábyrgðinni öldungis óviðkomaudi. Sama er og að segja um allan þann hostnað, er hlýst af þvi, að taka verður i burtu málmþynnuhúðina lil þess að gert verði við skipið og setja hana á aftur. Samábyrgðin ber ekki ábyrgð á þvi tjóni, er vátrygt skip verður fyrir meðan það er notað til annars en fiskiveiða, fiski- flutninga eða björgunar á mannslífum, sbr. þó ákvæðið um að hjálpa úr háska öðrum skipum, sem vátrygð eru í Sam- ábyrgðinni eða öðrum fjelögum, sem samið hafa við Samábyrgðina um slíka hjálp. Ennfremur er leyft að draga skip og takast á hendur smávegis vöruflutn- inga. Skaðabætur fyrir tjón á gufuskipum

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.