Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1915, Page 10

Ægir - 01.11.1915, Page 10
152 ÆGIR eru reiknaðar út eftir þeim reglum, sem á hverjum tima er farið eflir af sjóvá- trj'ggingarljelögunum i Kaupmannahöfn. Þegar gert er við þilskip vegna bilun- ar, sem snertir Samábyrgðina, greiðir hún skipstjóranum 4 kr. á dag fyrir daglega umsjón og aðstoð meðan á viðgerðinni stendur, þó ekki fram yfir þá dagatölu, sem ákveðið er í matsgerðinni, að ganga þurfi til viðgei ðarinnar, nema það sann- ist siðar, að viðgerðinni hafi vegna ó- fyrirsjáanlegra atvika ekki geta orðið lokið á þeim tima, sem ákveðinn var i matsgerðinni. Dagpeningar þessir mega þó aldrei fara fram úr 10°/o af skaðabót- um þeim, sem greiddar eru fyrir tjónið. Annar kostnaður við skip og skipshöfn, siglingu í höfn til aðgerðar og dvölina þar er Samábyrgðinni óviðkomandi. Skip, sem orðið hafa fyrir sætjóni, skulu að viðgerðinni lokinni aftur skoð- uð og virt áður en Samábyrgðin tekst á hendur að halda áfram ábyrgðinni. Ef vátrygður hlutur er meira virði eflir við- gerðina heldur en hann var virtur i á- byrgðarskírteininu, getur vátryggjandi fengið verðmismuninn vátiygðan gegn því að greiða aukag jald, sem nánarverð- ur ákveðið. Vátryggingarhækkunina skal rita á ábyrgðarskírteinið. Þá er sameiginlegt sætjón (havari grosse) ber að höndum, skal farið eftir hinum almennu reglum um það. Fyrir fjón og kostnað, sem ekki er talið sameiginlegf sætjón, i niatsgerð (dispache), er gerð er lögum samkvæmt á rjetlum slað, verða ekki heimtaðar skaðabætur með skírskot- un til þess, að þetta sje sameiginlegt sæ- tjón samkvæmt íslenskum lögum. Hernaðartjón og afleiðingar þess eru Samábyrgðinni óviðkomandi. Sljórn Samábyrgðarinnar sker úr því, hver sje skaðabótaskylda Samábyrgðar- innar og hvernig skaðabótum skuli haga, þegar engin ákvæði finnast um það i þessari reglugjörð, og skal hún hafa hlið- sjón af þeim ákvæðum, sem á hverjum tima standa í samþyktum og ábyrgðar- skírteinum sjóvátryggingarfjelaganna i Kaupmannahöfn og af hinum almennu reglum löggjafarinnar. 0m suid, bjorpu og endurlífguu. Sund er betri íþrótt en allar aðrar, til að styrkja og vernda heilsuna. Með því að æfa það, fæst hin hollasla hreyfing fyrir brjóstið, sem hægt er að fá, og þar með styrkir það blóðrásina og hreinsar blóðið; lika styrkir það vöðvana og tauga- kerfið. Fyrir utan alla þessa kosti er sundkunnátfan nauðsynleg, ekki einungis til að vernda sjálfan mann frá druknun, heldur líka til að hjálpa öðrum, þegar slys ber að höndum. Margir drukna venjulega á hverju ári, og enginn efi er á því, að margir þeirra hefðu bjargast, ef menn hefðu verið al- ment syndir og kunnað hinarrjettu björg- unar- og endurlifgunaraðferðir. Til þess eru mörg dæmi hjer á landi, að full- orðnir og hraustir karlmenn hafa drukn- að i bæjarlæknum eða annari smásprænu. Allir hljóta að gcta ímyndað sjer hvern- ig mönnum muni vera innanbrjósls, sem verða fyrir þvi, að horfa á druknandi mann brjóiast um i vatninu, og geta ekki hjálpað honum. En til þess veit jeg mörg dæmi hjer á landi, um nienn, sem druknað hafa t. d. í ám, að þeir hafa ílotið fram á yfirborðinu eins og rekald, og þeir sem þetta hafa sjeð, hafa orðið að gera sjer það að góðu, að ganga fram með ánni og horfa á það, sem var að gerast, uns það var um garð gengið.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.