Ægir - 01.05.1930, Síða 9
ÆGIR
99
ið tilkynnt eftir marga mánuði, en þeir,
sem sendu, urðu að leggja alla sölu í
hendur umboðsmannsins og munu aldrei
liafa fengið að vita sannvirði. Zoéga los-
aði sig hið fyrsta hann gat við Muus og
verzlaði síðan við Salomon Davidsen.
Árið 1884 byrjaði hann að byggja
verzlunarhús þau, sem nú standa norður
við Vesturgötu. Var liið neðsta, þar sem
nú er sölubúðin, byggt fyrst og síðan
hætt við eftir því, sem verzlun óx og út-
gerð, og urðu þau 4 alls og er verzlunar-
skólinn nú í hinu síðasta, er hann lét
reisa. Það hús stóð fvrst inni í Vatna-
görðum og átti Vídalínsútgerðin það;
keypti Zoéga það og flutti liingað til hæj-
arins, svo liúsið á sína sögu.
Búskap nokkurn hafði Zoéga og átti
hér stór tún, fallega gripi í fjósi og hina
fallegu gæðinga. Allir gamlir Reykvík-
uigar kannast við „Geirstún" og „Nýja-
tún‘“, sem nú eru úr sögunni, bæði liorf-
in vegna gatna og bygginga.
IV.
Hinn 18. ágúst 1886 var hátíðlega hald-
ið 100 ára afmæli Reykjavíkur; voru þá
íbúar um 3550 og 11 þilskip voru gerð
út á fiskiveiðar. 14 árum síðar, eða um
aldamól voru skipin um 60.
Ekki freistaði það Zoéga er Vídalín
fékk sér tvo togara og byrjaði liér að
veiða með botnvörpu árið 1899, ekki
heldur er Valgarður Breiðfjörð gerði lil-
raunir að halda kútter „Önnu Breið-
fjörð“ út til botnvörpuveiða árið 1902;
hann hélt sinni stefnu og veik ekki frá.
Árði 1900 gerði Zoéga út þessi skip á
þorskveiðar: „Geir“, „Gvlfa“, „Ane
Mathilde“, „Harald“, „Margrethe" og
»• o Venner“ Sama ár kevpti hann kútt-
er »foiler“ og gerði út það ár og auk
l)ess ,„Litla Geir“, sem hann keypti af
^igurði í Merkinesi og' skinnaði upp. Var
hann jöfnum höndum notaður til veiða
og vöruflutninga.
Öll þessi skip hafði Zoéga gert út og
fleiri þó, þegar ensku botnvörpuskipin
byrjuðu að reka veiðar sínar hér við
land. Þá hættu Englendingar að nota
kúttara sína, sem áður höfðu veitt með
botnvörpum.
Mun Zoéga hafa séð það, að hér myndi
um góð þorskveiðaskip að ræða þar sem
kúttararnir voru og tók hann sig því upp
og lagði á stað til Englands til skipa-
kaupa hinn 10. febrúar 1897. í þá ferð
tók hann með sér skipstjórana Guðmund
Kristjánsson og Kristján heitinn Bjarna-
son, sem druknaði, er skip hans „Orient“
hvarf snemma á vertið 1903. Var Kristj-
án hróðir Markúsar skólastjóra Bjarna-
sonar. Með honum fór einnig Guðlaug-
ur Torfason skipasmiður og fór hann
sem skoðunarmaður skipa þeirra, sem
keypt kynnu að verða og sýnir það fyr-
irhyggju Geirs.
Er út kom var úr nógu að velja, og á
hinum sama degi mun Zoéga hafa fesl
kaup á 5 skipum, á þremur fyrir sjálf-
an sig og tveim fyrir aðra.
Þau sem hann keypti f\TÍr sjálfan sig
voru kútterskipin:
Citv of Edinbourg, City of Liverpool
og Lusty, voru skip þessi nefnd öðrum
nöfnum, er þau komu hingað, og voru
kölluð Friða, Sjana og Jósepliina; hin
skipin munu hafa verið Sigríður (Th.
Th.) og Haraldur, sem lengi var kendur
við Akranes, hét áður „William Bovs“.
Mánuði eftir að Zoéga lagði liéðan á
stað, eða 10. marz, voru skipin keypt, og
að öllu leyti ferðbúin til íslandsfarar
voru 3 þeirra, og lögðu á stað þann sama
dag. 7 og 8 daga voru þau á leiðinni.
Kom Kristján Bjarnason fyrstur hinn 17.
marz, og liinn 18. komu liin.
Á 7 dögum voru skip þessi affermd