Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 10

Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 10
ÍOU Æ G I R liér, voru öll hlaðin kolum og cementi, hreinsuð, útbúin með saltkössum og öllu því er þorskveiðaskip þurfa að liafa inn- anborðs og voru ferðbúin til veiða liinn 25. marz. Þá var unnið hjá Geir. Skipin náðu mesta hluta vertíðar og tilgangin- um var náð. Þetta, að Zoéga liafði farið til skipa- kaupa til Englands og lýsing þessi kann í fljótu bragði að virðast litið efni til að skrifa um langt mál, cn fyrir fiskimenn landsins er sú ferð þýðingarmikil og vert að hennar sé getið, því hún gerhrevtti útvegnum hér, og hún varð til þess, að tugir af samskonar ski])um gengu héðan til veiða á næstu árum, því skipum Geirs fylgdu þegar önnur. Fiskimennirnir vildu ekki ráða sig á annað en kúttara úr því þeir fóru að sjást. Þar voru á- byggileg skip og rúmgóð og þægindi í’Jeiri en menn voru vanir hér á fiski- skipum áður. Þeir sem peninga áttu, kepptust um að ná í kútter og útvegur þessi óx liröðum fetum. 1 kaupum þess- um voru sumir óhepnir, enda ekki eins fyrirhyggjusamir og Geir, að hafa með sér eða senda út skiþasmið til að skoða skipin, áður enn kaup voru gerð. Eins og Zoéga var frumkvöðull lil að Stýrimánnaskólinn var stofnaður, eins má með réttu segja að Englandsför Iians 1897, hafi verið byrjun til annars skóla, sem fjöldi manna nýtur nú góðs af, og það er hin verklega þekking, sem ruddi sér svo lil rúms eftir að kúttararnir komu, meðal fiskimanna hér, að jieir á skömmum tíma komust þangað, sem annara þjóða fiskimenn láta staðar numið. Skipstjórar og stýrimenn saumuðu og sniðu sín eigin segl, og mun það fátítt, að jafnmargir kynnu þá iðn og hér. Þegar skipin hættu veiðum á Iiaustin, var þeim lagt í vetrarlegu og þannig þrif- in, að þegar litið var á flotann, þar sem hann lá, mátti ætla að hér væru skemti- skip en ekki fiskiskip; þannig voru þau fáguð og' vel frá öllu gengið, og þeir, sem gera það, sanna að þeir liafi gengið i gegnum góðan skóla, sem fvrir sjó- menn vfirleitt mun liinn affarasælasti. Um 10 ára skeið gerði svo Zoéga út þessa tegund ski]>a, og hætti þá fyrir fult og alt útgerð, ])að var um 1908, og 10 árum eftir, eru þessi skip að hverfa úr sögunni. Botnvörpuskip og rnótor- slcip liafa nú rutt sér rúm; þá byrjaði nýr skóli, bvgður á kunnáttu manna frá þeim gamla, og reynslu j)eirri, sem menn fengu þar. Skipastóll Geirs Zoéga „Fanny“. „Bevkjavík“. ,,Gvlfi“, eig- endur Geir Zoéga, Kristinn Magnússon og Jón Þórðarson. „Haraldur“. „Litli Geir“. „Fálk,inn“. „Ane Mathilde“. „Geir“. „Margrethe“ (eigandi Zoéga einn). „To Venner“ (Zoéga og Jón Ólafs- son i Hlíðarhúsum). „Toiler“ (Zoéga einn og eftirtöld skip). „Isahella“. „Fríða“. „Sjana“. „Josephina“. „Guð- rún Zoéga“. „Victory“. „Familien“ (strandaði við Stafnes). Árin 1897—1900 liöfðu um 00 menn á landi, að lieita mátti, stöðuga vinnu við útgerð og verzlun hans, auk þeirra, sem ráðnir voru á skipin og j)eirra er liskinn verkuðu , sem var mjög dreifður liópur, en mannmargur j)ó; konur og karlar tóku j)á fisk til verkunar og var honum þannig komið fvrir; mátti oft líta barna- liópa að hjálpa til við breiðslu og á ýms- an liátt aðstoða mæður sinar, sem oft unnu að þessu einar, er mennirnir voru á sjónum. Vakti ])cssi vinna barnanna til dáða og var gamli maðurinn oft liýrleit- ur er hann sá hið smávaxna lið, önnum

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.