Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 20

Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 20
110 ÆGIR aðallega á opna vélbáta, enda ekki um aðrar fleytur að gera á þeim tima. Fisk- inn segja menn magran og lifrarlítinn en mest allan rigafullorðinn. Þá hefir undanfarið verið drepið óvanalega mik- ið af sel, lmýsu, liöfrungi og hákarli hér við Eyjafjörð og á Skjálfandaflóa. Fjögur vélskip ganga hér til línuveiða af Eyjafirði fyrir sunnan land og vestan og eitt leggur upp hér heima, hefir farið tvo túra og fengið um 230 skpd. nær alt fullorðinn fisk. Þá er eitt línuveiðagufu- skip leigt til Suðurlandsins, til lifrar- kaupa og hræðslu um horð. Nokkur fleiri ski]) er i ráði að senda til línuveiða, héðan og af Siglufirði nú, um ög eftir mánaðamót, ef veðrátta ekki liamlar. Og húast má við að útgerðin fari vaxandi á þessu ári, með þilfarsvélbát- um auk þess, að opnu vélbátunum fjölg- ar afskaplega, í nær öllum veiðistöðvum hér nyrðra. Nokkuð gengur að vísu altaf úr skaft- inu af eldri bátum, sem eru lagðir niður, eða þeim sem strandað hafa, en nýhygg- ingarnar eru langt um meiri en sem þessu svarar. Þar fyrir utan er nokkrir hátar keyptir að, frá Noregi. Er ánægju- legt að sjá, hversu vel er vandað að öllu leyti til nýju hátanna, að minsta kosti þeirra, sem hér eru bygðir, bæði að efni og vinnu, en liitt er aftur á móti hrygðar- efni, að þessi vönduðu veiðitæki skuli oft ekki gefa eigendum sinum annað en tap, eða þá sáralítinn liagnað, þegar hest læt- ur, fyrir alt þeirra umstang og áhættu, þrátt fyrir sæinilegt verð á fiskinum, eins og verið hefir undanfarið, og væntanlega verður þetta árið. Nú eru menn almennt, sem óðast að dytta að hátum sínum og setja á flot, svo þeir verði tilhúnir ef afli kennir og gæft- ir fást, en stundum áður hafa sumir út- gerðarmenn orðið helst til síðbúnir og mist nokkurs í vegna þess. Vart hefir orð- ið við síli, bæði viða við Eyjafjörð og eins á Skagafirði, enda fengu Sauðkræking- ar talsverða aflahrotu nú nýskeð, en þar eins og annarstaðar fer mikið af vetrar- fiski, ef nokkur fæst, einkum sinni parl vetrar, til heimaneyzlu i veiðistöðvunum og uppsveitunum. Ég hirði ekki að rita um þau tvö vél- fræðinámskeið, er haldin hafa verið í vetur á Húsavik og á Akureyri, þau fóru að öllu vel fram, en annars er Fiskifé- laginu jafn kunnugt um þau eins og mér. - Ég' hefi lítið ferðast, síðan ég' kom af Fiskiþingi, mest vegna ótíðar, en ætla mér að hefja ferðalög' mín upp úr næstu mánaðamótum, en sambönd hefi ég liaft við marga menn, víðsvegar í umdæminu, hæði hréflega og símleiðis. Þess verður getið i næstu skýrslu. Verð- ur þá vonandi frá fleira að segja en nú. Svalharðseyri 17. apríl 1930. Páll Halldórsson. Lög frá Alþingi 1930. 1. Lög um heimild fyrir rikistjórnina til þess að áhyrgjast rekstrarlán til útgerðar. 2. Lög um heimild fyrir rikisstjórnina til nokkurra ráðstafana vegna al- þingishátíðarinnar 1930. 3. Lög um lántöku fyrir rikissjóð. 4. Lög um brevting á 1. gr. laga nr. 16, 7. maí 1928. Laun embætismanna). 5. Lög um stofnun flugmálasjóðs ís- lands. 6. Lög um sölu lands undan prestselr- inu Borg á Mýrum. 7. Lög um sölu jarðarhluta Neskirkju og' ríkissjóðs úr jörðinni Nesi í Norðfirði.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.