Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 17

Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 17
ÆGIR 107 markaði, ekki aðeins í Italíu heldur og á Spáni. Hafa þeir árið sem leið sent smá- sendingar til þessara staða á Suður-Spáni, Sevilla, Malaga, Alicante og Valenciu. En lillar hafa þessar sendingar verið til þess, að enn þá sé hægt að dæma um árangurinn af þeim. Að endingu viljum við minnast á eitt atriði, sem ekki er minst um vert, og það er það, að við þurfum að vanda meðferðina á fiskinum okkar meir en nú er gert. Jóns álit er það, að í þessu efni hafi okkur farið aftur hin seinni ár. Við knnnnm nú að fara svo með fiskinn að úr honum verði góð markaðsvara, en við gerum það ekki eins og skyldi. Það er gott og blessað að við höfum nú mark- að fyrir allan okkar saltfisk, ekki að- eins þann góða, heldur líka þann lakari og þann vonda, og með réttu og ströngu mati getum við vonandi ekki aðeins haldið þessum mörkuðum okkar, heldur og aukið þá. Við þurfum nú ekki að skemma fyrir okkur á vandlátari mörk- uðum með því að senda þeim fisk, sem þeim ekki líkar. Þann fisk getum við sent á aðra markaði óvandlátari. En þeir fiskframleiðendur eru því miður of marg- ir til heima, sem svo lítið hugsa um að vanda þessa vöru sína, að minst af henni ætti eftir ströngu mati að metast sem nr. 1, heldur sem nr. 2, 3 og 4 og úr- gangsfiskur. Hve mörgum hundruðum þúsunda töpum við ekki þannig árlega, að of illa er farið með gott efni? Hve mikið seljum við árlega af nr. 2 fiski, sem hefði getað selst sem nr. 1 ef með- ferðin á honum hefði verið góð? Við spyrjum, ekki til að fá svar, heldur til þess að vekja athygli manna á þessu. Þetta þarf að lagast og mun sennilega eina ráðið til þess vera nógu strangt mat. Með þvi munu augu manna smá opnast fyrir þvi, að það borgar sig ekki að fara illa með fiskinn. Og vist er það, að fram- tið saltfisksverzlunar okkar er fyrst og fremst undir því komin að við vöndum vöruna meir en keppinautar okkar, því með gœðunum einum getum við kept við þá til lengdar, en ekki með verði. II. 21. marz 193. Nú eru 3 skip á leiðinni hingað (Sus- anna, Rensfjell og Velox). Munu þau öll koma hingað um líkt leyti, eða í kringum næstu mánaðamót og má þá húast við einhverri verðlækkun, sérstaklega ef mik- ið kemur af fiski, sem ekki líkar hér og altaf má búast við, að verði talsvert af, þar sem þetta eru síðustu farmarnir með fisk frá fyrra ári. Síðustu sölur á húsþurkuðum fiski liingað munu vera á 40 sli. cif, eða kring- um það með afskipun i lok þessa mán- aðar, en heyrt hefi ég, að fiskur til af- skipunar í apríllok sé hoðinn út fyrir 1—2 sh. lægra verð. Enginn efi er á þvi að það mun auka kauplyst innflytjenda að afskifti matvæla- nefndarinnar af heildsöluverðinu á salt- fiskinum, hefir verið afnumið. Þó mat- vælanefndir séu í mörgum bæjum á Spáni, hefir áhrifa þeirra á saltfiskverð- ið hvergi gætt nema liér í Barcelona. Gengi pesetans, sem í byrjun þessa mánaðar komst lægst niður í 42.50 fyrir sterlingspundið hefir smáhækkað síðan um miðjan mánuðinn upp í kringum 38.50 peseta fyrir pundið. Búast menn al- ment við að gengið muni haldast í kring- um þetía nokkurn tíma, þó menn húist frekar við, að það hækki lieldur en lækki. Er sagt að stjórnin vilji verðfesta peset- ann, en í hærra verði en þessu. Ekki húast menn liér við neinum oeirð- um né uppreist þó breyting yrði á stjórn-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.