Ægir - 01.05.1930, Blaðsíða 25
Æ G I R
115
frá prímuslampa, er hafði sprungið í
vélarúminu. Mönmmum var bjargað
af öðrum bát, er þar var nærri, og dró
„Braga“ til lands, sem þá var brunn-
inn svo mjög, að ónýtur var talinn.
9. Þann 15. maí strandaði mótorbátur-
inn „01ga“ frá Eyrarbakka við Þor-
lákshöfn. Skipverjar, 2 að tölu, hjörg-
uðust ómeiddir í land, en báturinn
eyðilagðist.
10. Þann 29. mai sökk mótorbáturinn
„Gústaf“ frá Vestm.eyjum í norð-
anverðum Faxaflóa. Var hann á leið
til Siglufjarðar til róðra, er óstöðv-
andi leki kom að honum, svo að hann
sökk. Mönnunum, 5 að tölu, var
bjargað af mótorbátnum „Hjálpar-
inn frá Vestmannaeyjum, er flutti þá
til Patreksfjarðar.
11 ■ Þann 31. maí strandaði norska vöru-
flutningagufuskipið „Union“ frá Osló
i svarta þoku við Engeyjarrif, en náð-
sit út aftur daginn eftir lítið eða ekk-
ert skemt. Skipverjar höfðu ekki vf-
irgefið skipið.
12- Snemma í júní strandaði mótorbát-
urinn „Haukur“ frá ísafirði á Horn-
vík og brotnaði þar í spón. Mann-
björg varð.
13. Þann 13. ágúst sökk mótorbáturinn
„Halkion“ frá Eyrarbakka við land
á Siglufirði. Hafði rekist á hafis í
Húnaflóa og laskast. Skipverja sak-
aði ekki.
ld. Þann 14. ágúst kviknaði eldur í mót-
orbátnum „Mardöll“ frá Önundar-
firði, er var staddur á Húnafl. Náði
báturinn sambandi við norska eftir-
litsskipið „Michael Sars“, er dró hann
til Kálfshamarsvíkur, þar sem hann
sökk, en skipverjar björguðust.
15. Þann 16. september sökk norska síld-
veiða-mótorskipið „Defender“ frá
Haugasundi 50 sjómílur út af Glett-
iganesi, fullfermt sild. Skipverjum
bjargaði enskt fiskiveiðagufuskip og
flutti þá til Seyðisfjarðar.
16. Þann 28. september strandaði mótor-
báturinn „Stígandi“ frá Svalbarðs-
eyri við Haganesvík og' brotnaði þar i
spón. Skipverjum bjargaði varðskip-
ið „Ægir“.
17. Þann 20. október fórst mótorbátur-
inn „Gissur hvíti“ frá ísafirði í fiski-
róðri með öllu, þar á meðal 11 mönn-
um.
18. 31. október sökk e.s. „Björgúlfur“ frá
Siglufirði á Skagafirði, hlaðinn
sandi og möl, á leið til Siglufjarðar.
Skipverjar björg'uðusl allir.
19. Þann 26. nóv. fórst mótorbáturinn
„Baldur“ frá Stvkkishólmi við Máfa-
lilíðarhellu hjá Búlandshöfða. Tveir
skipverjar björguðust, en einn
druklcnaði.
20. Snemma í desember rak mótorbátur-
inn „Mentor“ frá Þingeyri i land á
Suðureyri við Súgandafjörð og brotn-
aði hann þar. Báturinn var mannlaus.
21. Þann 21. des. strandaði varðskipið
„Þór“ við Sölvabakkafjöru við aust-
anverðan Húnaflóa, í stormi og kaf-
aldsbvl. Skipverjum, 19 að tölu, varð
bjargað, en skipið eyðilagðist.
22. Þann 21. des. strandaði þýski togar-
inn, „Alteland“ frá Crave við Elben,
á Melunum, sunnan við Hafnarberg.
Skipverjar allir, 13 að tölu, björguð-
ust i land ómeiddir og komust til
Reykjanessvita, til vitavarðarins þar,
en skipið brotnaði í spón.
Þessi slcipskaðalisti og bátstapa ber með
sér, að 4 togarar hafa strandað hér við
land á árinu og cyðilagst. Voru báðir er-
lendir, 2 þýskir og 2 enskir, en allir skip-
vcrjar björguðust.
8 islenskir mótorbátar hafa strandað á
árinu og eyðilagst og 2 brunnið. Varð að-