Ægir - 01.09.1930, Qupperneq 10
196
ÆGIR
Björgunarbátur.
Björgunarfélag Norðmanna hefir nú
látið smíða nýja skútu með mótorvél,
sem einungis er ætluð til þess að fylgja
með fiskibátunum og hjálpa þeim til
hafnar eí eitthvað bilar.
Skútan heitir »Andreas Arö« og er fyrsta
björgunarskúta Noregs, sem notar mótor-
vél, aðrar björgunarskútur þeirra hafa
að eins segl.
Eftirfarandi grein er lýsing á skipinu,
eins og hún birtist í »Fiskeren« 18. júní
þ. á. í lauslegri þýðingu:
Björgunarskútan »Andreas Arö« er vel
útbúin og hraðskreið og sem notar hvort
heldur mótor eða segl eftir því hvern-
ig ástendur. Þetta er mikil aukning á
björgunarflota félagsins, því það er auð-
skilið, að mótorskúta getur í mörgum
tilfellum gert meira gagn en seglskúta.
I vondum veðrum er það enginn leikur
fyrir seglskútu að draga á eftir sér bilað
skip af sömu stærð, og öllum er það
vitanlegt, að björgunarskúturnar hafa
stundum átt fullt i fangi með að koma-
fiskibátum, sem þeir hafa hitt ósjálf-
bjarga í höfn.
Stjórn björgunarfélagsins hefir verið
það Ijóst, að allar björgunarskútur þess
þyrftu að hafa mótor og segl, en það
hefir mikil útgjöld í för með sér, en fé
hefir félagið ekki haft afgangs í sjóði.
Tekjur félagsins eru mestmegnis frjáls
tillög og gjafir, einkum frá þeim hluta
þjóðarinnar, sem býr við sjávarsíðuna
og tekjurnar hafa eigi aukist i hlutfalli
við útgjöld félagsins.
Félagsstjórnin heldur þó áfram með
sitt blessunarrika starí með því að auka
og efla björgunartækin á sjó og landi í
von um að þjóðin skilji og sjái hve
nauðsynlegt það er, og véf vitum að fé-
lagið muni aldrei verða févana. Yér
viljum ákveðið skora á menn að styðja
félagið á allan hátt svo þessi starfsemi
megi bera sem beztan árangur. Þetla er
að eins fjárhagsatriði, sem um er að
ræða, sem greiðist aftur með margföld-
um rentum.1)
Það hefir verið ákveðið að »Andreas
Arö« fylgi síldveiðiskipunum á næstu ver-
tíð og mun þá fást rannsókn á því hvers
virði það er að hafa mótor í björgunar-
skútunum. Eftir þeirri reynslu, sem við
það fæst, mun félagið haga björgunar-
starfi sinu á hafinu.
Mótorskútan er smíðuð hjá Christen-
sen & Co í Risör. Hún er lík að lagi og
hinar eldri björgunarskútur, að eins 6
fetum lengri, hún er 51 fet á lengd og
16 fet á breidd, Reiði og segl eru alveg
eins á eldri skipunum.
»Andreas Arö«, er mjög traustlega
byggður og öllu haganlega fyrir komið.
Skipsklefar rúmgóðir og bjartir.
Mótorvélin er sett mitt á milli aftur-
stefnis og miðskips í þverlínu og véla-
rúmið er stórt og bjart. Það er 50 hest-
afla 2 Cylindra Wichmanvél eða Rub-
bestadsmótor, -eins og þær eru venju-
lega kallaðar. Verksmiðjueigendur eru
Haldorsen & Sön, Rubbestadnes. Ef vatn
er notað á vélina má auka kraftinn í
80 hestöfl. Vélin er með nýjasta og full-
komnasta útbúnaði, sett á stað með
7—8 minútna fyrirvara og hefir algerlega
sjálfvirk smurningstæki. Skútan fer með
7—8 milna hraða með vélinni einni,
sem má þó auka ef nauðsyn krefur.
Skipshöfn er 4 menn, skipstjóri, báts-
maður, sem einnig er vélstjóri, háseti og
matsveinn.
Skipstjóri á »Andreas Arö« er Möller,
1) Skytdi þetta ekki eiga einnig viö hjá okk-
ur íslendingum. Pýð.