Ægir - 01.11.1930, Blaðsíða 4
234
ÆGIR
Emil Nielsen
framkvæmdarstjóri.
Hann ílutti alfarinn héðan til Dan-
merkur hinn 1. nóvember þ. á. eftir ná-
lega 18. ára starf.
Þykir því við eiga að minnast á starf-
semi hans þessi árin og verður hér farið
eftir skýrslu Eimskipafélagsins 1930.
Á aðalfundi félagsins 23. júní 1928 skýrði
Emil Nielsen útgerðarstjóri frá þvi, að
gefnu tilefni, að hann vegna heilsubrests
og af öðrum ástæðum hefði óskað að
láta af störfum sinum, en það hefði orðtð
að samkomulagi, að hann gengdi út-
gerðarstjórastöðunni til 1. janúar 1930,
og í skýrslu félagsstjórnarinnar til aðal-
fundar í fyrra, var skýrt frá þvi, að fé-
lagsstjórnin hefði boðið Jóni Guðbrands-
syni, fulltrúa á skrifstofu félagsins í Kaup-
mannahöfn, útgerðarstjórastöðuna, en
hann hefði af sérstökum ástæðum ekki
talið síg geta tekið við stöðunni, og hefði
félagsstjórnin síðan ráðið Ólaf Benja-
mínsson kaupmann í Reykjavik útgerð-
arstjóra félagsins frá byrjun yfirstandandi
árs. Var svo um talað, að Ólafur Benja-
mínsson skyldi byrja að starfa hjá fé-
laginu 1. október f. á. til þess að kynn-
ast sem bezt útgerðarstjórninni, áður en
Emil Nielsen færi, oggætiumtima notið
þekkingar hans og reynslu til undirbún-
ings því að taka við útgerðarstjórninni.
En skömmu áður varð Ólafur Benja-
mínsson alvarlega veikur. Var það þó
ekki fyr en í nóvember f. á. að læknar
töldu veikindi hans þess eðlis, að eigi
væri rétt hvorki hans né félagsins vegna,
að hann tæki við útgerðarstjórn félags-
ins. Skrifaði ólafur Benjamínsson siðan
félagsstjórninni 13. nóv. f. á. og skýrði
frá því, að allar líkur væru til þess, að
hann yrði ekki fær um að taka að sér
útgerðarstjórastöðuna sökum áfalls þess,
er heilsa hans hefði orðlð fyrir, og ósk-
aði því, að felldur yrði úr gildi samn-
ingur hans við félagið. Samþykkti fé-
lagsstjórnin það að sjálfsögðu og lét um
leið í ljós við Ólaf Benjamínsson, að
hún harmaði það mjög, að félagið gæti
ekki notið starfskrafta hans eins og til
var stofnað.
Lá nú enn fyrir að leitast fyrir um
nýjan útgerðarstjóra fyrir félagið. Var
tíminn svo naumur, að málinu var ekki
lokið fyrir áramótin, og tók Emil Niel-
sen því að sér, eftir ósk félagsstjórnar-
innar, að starfa áfram fyrst um sinn sem
útgerðarstjóri. Á fundi félagsstjórnarinnar
30. des. f. á. var siðan samþykkt að snúa
sér til Guðmundar Vilhjálmssonar fram-
kvæmdarstjóra í Leith með tilmælum
um, að hann tæki að sér að verða út-
gerðarstjóri félagsins. Iíom hann hingað
til Reykjavíkur um miðjan janúar, og
varð það að samkomulagi, að hannyrði
útgerðarstjóri félagsins frá 1. júní að
telja.
Emil Nielsen lætur því nú af starfi
sínu sem útgerðarstjóri, er bann hefur
haft á hendi síðan félagið var stofnað.
En eins og skýrt var frá i skýrslu fé-
lagsstjórnarinnar til síðasta aðalfundar,
þá verður hann samt sem áður í þjón-
ustu félagsins. Hefur félagsstjórnin gert
samning við hann um það, að hann
verði umsjónarmaður félagsins undir
stjórn útgerðarstjóra. Skuli hann sérstak-
lega hafa eftirlit með skipum félagsins,
viðhaldi þeirra og aðgerðum á þeim,
gæta hagsmuna félagsins gagnvart vá-
tryggingarfélögum og öðrum ef skipin
verða fyrir sjóskaða, hafa eftirlit með
innkaupum á nauðsynjum til skipanna,
láta í té aðstoð við samninga um nýskip
og hafa eftirlit með smiði þeirra, hal'a