Ægir - 01.11.1930, Side 5
ÆGIR
235
yíirumsjón með afgreiðslum félagsins er-
lendis, veita aðstoð um leigu á skipum
og starfa einnig að öðru leyti sem trún-
aðarmaður félagsins, allt eftir nánara
fyrirlagi útgerðarstjóra félagsins á þeim
sviðum, sem hann óskar eftir.
Emil Nielsen er fæddur í Rudköbing
26. jan. 1871. Ólst hann þar upp, og tók
þar burtfararprót úr gagnlræðaskóla 1886.
En það ár hóf hann farmannslif sitt, 15
ára gamall. Fór hann fyrst til Ham-
borgar og réðst þar á þýzkt skip, og var
fyrst þrjú ár í siglingum um ýms höf á
þýzkum og dönskum skipum. Síðan tók
hann stýrimannspróf 18 ára gamall. Að
því loknu og þegar hann hafði innt af
hendi tandvarnarskyldu sína, fór hann
árið 1890 aftur í langferðasiglingar og
var í förum sem hásetí og stýrimaður
þangað til haustið 1894. Þá kom það
fyrir, að skip það sem hann var á, fórst
við Suður-Ameriku. Hvarf hann þá heim
hl Danmerkur.
Þetta varð til þess að hann var skip-
stjóri á seglskipinu »Mercur«, sem áttiað
Hytja vörur til íslands, og kom hann
fyrst hingað til lands sem skipstjóri á
því skipi. Var það á sumardaginn fyrsta
árið 1895, að hann kom á skipi þessu
M Djúpavogs. Var hann síðan i sigling-
u» hingað á »Mercur« árin 1896 og 1897.
Eéðst hann þá i þjónustu gufuskipafé-
lagsins Úrania. Varð hann skipstjóri á
gufuskipinu »Venus« árið 1898 og var i
SIghngum það ár til Suður- og Norður-
Ameríku. Þvi næst var hann skipstjóri
a gufuskipunum »Rusland« og »Kron-
PHns Frederik«, 1 siglingum um Norð-
ursjó og Eystrasalt. En stjórn téðs fé-
*ags fékk honum síðar það trúnaðar-
starf, að hafa umsjón með smíði á
skipinu »Marz«, sem félagið lét smíða í
Skotlandi. Skip þetta var smiðað sér-
slaklega til íslandsferða, og var Emil
Nielsen skipstjóri á því skipi í förum
hér við land þangað til 1901. Þá gerðist
hann einn af stofnendum Thorefélagsins.
Var hann skipstjóri á skipum þess fé-
lags i siglingum hingað, en jafnframt
ráðunautur félagsins bæði um kaup og
smíði á skipum og ýmsum öðrum grein-
um, þangað lil hann gekk í þjónustu
Eimskipafélags íslands 1. apríl 1914.
Úegar farið var að hreyfa stofnun Eim-
skipafélags Islands, hafði Emil Nielsen
þvi, eins og sézt af framanrituðu, siglt
hingað til lands í mörg ár, og kynnst
mörgum málsmetandi mönnum hér á
landi. Hafði sú viðkynning verið á þá
leið, að hann hafði áunnið sér traust og
virðing allra, fyrir óvenjulegan dugnað i
starfi sínu og fyrir hyggindi og ráðdeild
í öllu, sem hann hafði með höndum.
Var aðstaða hans þannig, að hann hafði
haft sérstaklega gott tækifæri til þess að
kynna sér rekstur siglinga milli Islands
og útlanda og með ströndum landsins,
og mjög góðum hæfileikum búinn til
þess að nytfæra sér þá þekkingu. Það
var því engin tilviljun, að þeir menn,
sem voru frumkvöðlar að stofnun Eim-
skipafélagsins, höfðu þegar í upphafi
augastað á Emil Nielsen, til þess að fá
honum í hendur útgerðarstjórn hins
fyrirhugaða félags. Hinn fyrsti undirbún-
ingsfundur til stofnunar félagsins var
haldinn 22. desember 1912, og annar
fundurinn var haldinn 26. s. m. Sama
dag hafði Emil Nielsen, þá skipstjóri á
»Sterling«, komið hingað til Reykjavíkur,
og var þegar á þessum öðrum undir-
búningsfundi samþykkt að snúa sér til
Nielsen um ýmsar upplýsingar viðvíkj-
andi félagsstofnuninni. Þriðji undirbún-
ingsfundurinn var haldinn 29. s. m. Á
þann fund kom Emil Nielsen samkvæmt
beiðni forgöngumanna, og var hann þá
þegar spurður að því, hvort hann mundi