Ægir - 01.11.1930, Blaðsíða 8
238
ÆGIR
hann byggður, að hvergi var hægt að fela
hönd á millum trjánna, en fleiri þúsund
smá eikarbútar frá 1—3 al. voru líka í
flotanum, kallaðir tylftarstykki, til upp-
fyllingar í allar holur millum trjánna.
Sagt var að floti þessi hefði átt að fara
til Englands frá Ameríku, en að skipið
hefði farist, sem hafði hann á i drætti en
sennilega hefur skipið verið komið upp
undir Reykjanes er það fórst, því mikið
af fataræflum og ööru dóti var á flotan-
um, sem sýndi að menn höfðu verið á
honum, fyrir skemmstu, áður en hann bar
að landi.
Uppboð var haldið á öllum trjánum,
eftir að búið var að bjarga öllu undan
sjó, en um verð á trjánum er mér ekki
vel kunnugt, en dýrasta tréð fór á 12 dali
(24 kr.) og keypti það Brandur heitinn
Guðmundsson langafi Björns Þórðarsonar
kaupmanns á Laugavegi 46.
Tugi ára var svo verið að saga niður
í borðvið öll þessi tré, sem keypt voru
mestmegnis af Vatnsleysustrandar, Rosm-
hvalaness, Grindavíkur og Hafnahrepps-
búum; var allt reitt á hestum, þegar búið
var að koma því i borð. Aðeins Hafna-
hreppsmenn fluttu flest trén heil sjóveg,
höfðu stundum 5—6 tré aftan í skipinu í
einu; var þá lagt á stað frá Reykjanesi
um stórstraumsfjöru, og norðurstraumur-
inn svo látinn hjálpa til með róðrinum.
Síðustu tré Hafnamanna voru sótt 1852,
af Gunnari sál. Halldórssyni, föður séra
Brynjólfs sál. mágs mín, sem var prestur
að Stað í Grindavík.*
2. Frönsk fiskidugga.
Árið 1863, í byrjun aprílmánaðar, strand-
aði á »Hásteinum« fyrir sunnan Kirkju-
[t óprentuöum söguhandritum mfnum, sem
koma í næstu Rauðskinnu, er ítarlega sagt frá
strandi þessu, í sambandi við reimleikann i
Valahnjúkshellinum].
vog, frönsk skonnorta. Losnaði hún aftur
af »Hásteinum« um háflæðið, en þá var
stýrið brotið, svo hún var gerð að strandi
þrátt fyrir það, þó skipið væri að öllu ó-
brotið, nema stýrið, var skipinu svo róið
»slefað« af þremur teinæringum inn í Kirkju-
vogsvörina, en tveim dögum siðar gerði
afspyrnu útsynningsveður, með hinu mesta
hafróti, og kastaðist skipið þá svo hátt i
flóðinu, að sjór kom ekki nálægt því eftir
það. 7000 af saltfiski voru i skipinu og
keypti afi minn, Ketill Jónsson allan fisk-
inn, en skipsskrokkinn keyptu Hafnamenn
i félagi fyrir 165 dali.
3. Svenska briggið.
Árið 1869, i byrjun marzmánaðar strand-
aði við Merkineskletta svenskt skonnortu-
brigg »Laura«. Skipið strandaði um miðjan
dag í blindhríðar-austanbyl, var mönnum
öllum bjargað 9 talsins, og héldu þeir allir
til hjá foreldrum mínum, þar til þeir voru
fluttir til Reykjavíkur. Skipið var á leið
til Sviþjóðar, frá Suður-Ameríku, hlaðið
allskonar dýrum varningi. En nóttina eftir
að skipið strandaði, losnaði það aftur, og
rak til hafs. Nokkru seinna rak það svo
á land vestur á Mýrum, til óhappa einna,
því sýslumaður og hreppstjóri urðu báðir
úti, á heimleið frá uppboðinu í gadd-
hörku norðanbil.
4. »Jamestown«. (stóra strandið).
Vorið 1881, á hvítasunnumorgun rak á
land norðanvert við Kirkjuvogssund, geysi-
lega stórt skip, í hafrótar-vestanroki, var
sjáanlegt, meðan skipið var að veltast
í brimgarðinum, að það mundi mannlausl
með öllu. Ekki var hægt að komast út í
skipið þrjá fyrstu dagana eftir að það
strandaði, fyrir brimi. Þegar skipið strand-
aði, lá á »Þórshöfn« skammt þar frá, er
skipið strandaði, danskt kaupskip frá H.
P. Duusverzlun í Keflavík, Skipstjórinn