Ægir - 01.11.1930, Side 11
ÆGI R
241
téð símalína verði lögð hið allra bráð-
asta«
2. V i t a m á 1. »Fjórðungsþingið skorar
á stjórn Fiskifélagsins að beita sér fyrir
því við vitamálastjóra, að eftirfarandi
vitar verði reistir og teknir í vitakeríi
landsins hið allra bráðasta:
a. Landtökuviti á svonefndum Óshól-
um eða Stigahlíð.
b. Radíó-viti á Fjallaskaga við Dýra-
fjörð.
c. Innsiglingarviti á Langanesi í Arnar-
íirði.
d. Innsiglingarviti á Þingeyrar-odda í
Dýrafirði.
e. Innsiglingarviti á Vatneyrar-odda í
Patreksfirði.
3. B e i t u m á I. »Fjórðungsþingið skor-
ar á stjórn Fiskifélagsins, að útvega fiski-
deildinni Hvöt í Tálknafirði kostnaðar-
áætlun um byggingu frystihúss með is-
frysting, er rúmi um 100 tn. af síld, með
nægilega stóru frystirúmi til starfrækslu
meginpart ársins«.
4. Landhelgismál. »Fjórðungs-
þingið skorar á stjórn Fiskifélagsins að
hlutast til um:
a. Að jafnframt og fyrirhugað nýtt
strandgæzluskip tekur til starfa, skuli
þvi falin strandgæzla og björguuar-
starfsemi fyrir Vestfjörðum allt árið,
jafnframt og það annist gæzlu á
Húnaflóa um síldveiðitímann.
b. Á meðan ekki er kostur á fullkomnu
strandgæzluskipi, annist hraðskreið-
ur vélbátur gæzluna frá 15. maí til
30. nóv.
5. Veðurfregnir. »Fjórðungsþingið
skorar á stjórn Fiskifélagsins að beita sér
fyrir því við rikisstjórnina, að reistar
verði þráðlausar talstöðvar á ísafirði,
Horni og Látrabjargi, þar eð slíkar stöðv-
ar myndu koma að miklum notum vegna
veðurathugana hér á Vestfjörðum. Enn-
fremur að hlutast til um, að veðurfregnir
verði sendar út kl. 1—2 árdegis dag
hvern«.
6. Fiskimálaskrifstofa. »Fjórð-
ungsþingið er fyrir sitt leyti meðmælt
þvi, að sett verði á stofn fiskimálaráðu-
neyti, eða fiskimálaskrifstofa, er taki við
þeim störfum, sem Fiskifélag íslands
hefir nú með höndum og fái auk þess
yfirstjórn fiskimats, verzlunarerindrekst-
ur ríkisins erlendis og annist öll þau
störf, sem að sjávarútvegi lúta, er alvinnu-
málaskrifstofa stjórnarráðsins hefir nú
með höndum. Þó skulu Fiskideildir fjórð-
unganna, starfa með svipuðu fyrirkomu-
lagi og nú, og fjórðungssamböndin fá að
minnsta kosti 10 þúsund krónur árlega
til umráða hvert, er fjórðingsþingin ráð-
stafa á eigin hönd«.
7. Lagabreytingar. »Verði Fiski-
félagi íslands eigi breytt í það horf, að
sett verði á stofn fiskimálaráðuneyti eða
fiskimálaskrifstofa ríkisins, skorar fjórð-
ungsþingið á Fiskiþingið, að gera meðal
annars eftirtaldar breytingar á lögum
Fiskifélagsins:
a. »Að fiskiþingsfulltrúar verði 15, er
skulu kosnir 3 af hverju fjórðungs-
þingi, en aðaldeildin í Reykjavík
kjósi 3 fulltrúa á Fiskiþing«.
b. Að hvorki stjórnendur né starfs-
menn Fiskifélagsins séu kjörgengir
á Fiskiþing.
c. Að stjórn Fiskifélagsinsskipi 3 menn,
kosnir af Fiskiþingi til 4 ára í senn.
Skal sú sljórn ráða framkvæmdar-
stjóra Fiskifélagsins til jafnlangs tíma
og nefnist hann fiskimálastjóri.
d. Að skattur af félagsmönnum deild-
anna renni framvegis í fjórðungs-
sjóð, en eigi til Fiskifélags íslands.
8. Fiskisölusamlag. »Fjórðungs-
þingið telur núverandi skipulag á sölu
saltfisks (verkaðs og óverkaðs) óviðun-