Ægir - 01.11.1930, Blaðsíða 12
242
ÆGIR
andi. Álítur þingið heppilegast að stofnað
verði sölusamlög, er taki yfir smærri
eða stærri svæði og síðan allsherjar sölu-
samlag fyrir land allt, er smærri ogstærri
framleiðendur ráði yfir, og öðlist það
samlag einkasölu á öllum saltfiski, ef
þurfa þykir«.
9. Hraðfrystihús. »Fjörðungsþing-
ið telur bráðnauðsynlegt, að hafizt verði
handa með hraðfrysting á fiski í stórum
stil, og að markaðsverði aflað fyrir hrað-
frystan fisk þar sem unnt er. Telur fjórð-
ungsþingið samt mjög varhugavert að
leyfa erlendu auðfélagi að stofna ogstarf-
rækja slík fyrirtæki hér á landi. Fyrir
því álítur fjórðungsþingið réttustu leið-
ina í máli þessu, ríkið láti reisa hrað-
frystihús i hverjum landsfjórðungi, er
rekin sé með svipuðu fyrirkomulagi og
síldarverksmiðja rikisins, og að hið fyrsta
þessháttar hús verði reist á ísafirðk.
10. Fj ár ha gs á æ11 n n. Þá var áætl-
un um tekjur og gjöld fjórðungsins tekin
til umræðu, og samþykkt lið fyrir lið,
óbreytt eins og hún kom frá nefndinni,
svo hljóðaudi:
Fjárhagsáætlun
Fjórðungssambands Yestfirðinga fyrir
árið 1931.
Tekj ur:
Tillag frá Fiskifélagi Islands kr. 1000 00
kr. 1000 00
Gjöld:
1. Kostnaður við fjórðungsþing
1930 .....................kr. 250 00
2. Tilsjóm.námsskeiðsáBíldu-
dal .......................-- 375 00
3. Til leiðarljósa í Tálknafirði — 150 00
4. Til lendingabótaíHafnarnesi — 150 00
5. óviss útgjöld...............— 75 00
kr. 1000 00
11. Kosning f i s k i þ i n gs f u 11-
t r ú a. Aðalfulltrúar kosnir:
Kristján Jónsson erindreki með 5 atkv.
og Kristján A. Kristjánsson kaupmaður
á Suðureyri með 4 atkv., eftir endur-
tekna kosningu. Við fyrri kosningu fengu
Kristján Jónsson 5 atkv., Kr. A. Krist-
jánsson og Arngrímur Bjarnason sín 4
atkv, hvor. Var þá kosið aftur milli þeirra
tveggja og fékk þá Kr. A. Kristjánsson
4 atkv. en Arngrimur Bjarnason 3 atkv.
Varafulltrúar voru kosnir: Arngrimur
Bjarnason og Jón Jóhannsson skipstjóri á
Bíldudal, með 4 atkv. hvor.
12. Næsta fj ór ð u ngsþin g var
samþykkt að halda á ísafirði.
13. Kosning fjórðungstjórnar.
Forseti kosinn Kr. A. Kristjánsson með
6 atkv., varaforseti Ingimar Bjarnason
með 4 atkv. Ritari kosinn Kristján Jóns-
son, vararitari ólafur Guðmundsson, báðir
með öllum greiddum atkvæðum.
Samþykkt var með öllum greiddum
atkv., að ritarinn annaðist jafnframt fé-
hirðisstörf fjórðungsins.
Fleira var ekki tekið fyrir á þinginu.
Fundarbókin lesin upp og undirrituð.
Þingi slitið kl. 6 siðd. 2. nóv. 1930.
ísafirði, 5. nóv. 1930.
Kristján Jónsson
frá Garðsstöðum,
(ritari fjórðungsþingsins).
Niðursuðuverksmiðja gjaldþrota.
»Skagens Sardin og Tonnofélagiða á
Jótlandi, hefur nýlega gefið sig upp sem
gjaldþrota. Það var stofnað vorið 1929
og tók þegar til starfa, keypti það um
sumarið mikið af makríli og túnfiski,
sem lagt var í olíu og mest megnis var
flutt til Ítalíu. Innborgað hlutafé var 150
þús. kr., og í verksmiðjunni unnu 150
menn.