Ægir - 01.11.1930, Síða 13
ÆGIR
243
Síldarleit úr lofti.
Starfsemi flugvélanna.
Veiðibjallan hóf starfsemi sina 6. júlí.
Samkvæmt lögum um flugmálasjóð, er
gert ráð fyrir, að síldarleit sé hafin eftir
15. júní og henni haldið áfram til 15.
sept. Nú stóð svo á í ár, að engin síld-
arskip hófu veiðar fyr en eftir 1. júlí
og var því álitið óþarft að hefja síldar-
leit fyr.
Fiugfélagið gerði fyrirspurn til nokk-
urra togaraeiganda og eins til einkasöl-
unnar á Akureyri, hvenær óskað yrði
eftir að byrjað yrði á leitinni, en allstað-
ar var skýrt tekið fram, að óþarfi væri að
byrja fyr en eftir mánaðamót júní—júlí.
Að aflokinni alþingishátíðinni var nauð-
synlegur undirbúningur hafinn og flaug
Veiðibjallan norður þann 6. júlí. Síðan
var leitað alltafþegar viðraði, en 15. júlí
varð Veiðibjallan fyrir þvi óhappi, að
flothylkin biluðu i lendingu á ólafsfirði
og reyndist nauðsynlegt að senda hana
með skipi til Reykjavíkur til viðgerðar
og gat hún ekki hafið starfsemi sína aftur
fyr en 9. ágúst, en þenna tíma var Súl-
an látin annast sildarleitina í sambandi
við loftferðirnar norður og austur.
Þegar viðgerð Veiðibjöllunnar var lokið,
var hún útbúin með loftskeytatækjum
og sérstakur loftskeytamaður Otto B.
Arnar ráðinn til að starfrækja stöðina.
Síðan var leitinni haldið áfram fram yfir
miðjan september og flogið, þegar veður
leyfði.
Nokkrar síldartilkynningar.
2 0. júlí. Súlan flaug 3 tíma 20 mín.
Síld sást á þessum stöðum: 15 sm.N. V.
Rifstangi, 3 sm. N. Tjörnesi. 5—10 sm.
N. A. Flatey, í Eyjafjarðarminni stórar
sildartorfur. Mörgum skipum var bent á
torfur með því að fljúga í kringum þær
og byrjuðu skipin þegar að veiða, stop,
þokuhætta frá N. stop, óðinn nýkominn.
30. júlí. Súlan flaug síldarflug frá
Siglufirði kl. 11,30, síld sást á Selvík og
útvestur af Drangsnesi og Hofsós, suð-
vestur af Málmey og 20 sm. norðvestur
af Siglufirði.
10. ágúst. Veiðibjallan flaug í dag
út Eyjafjörð vestanverðan, þaðan austur
undir Flatey, inn Eyjafjörð austanvert,
síld sást út af Þórhildarstöðum og víða
á svæðinu norður af Gjögurtá, austur
undir Flatey, ennfremur austanverðum
Eyjafirði meira og minna inn undir Sval-
barðseyri. Allmörg skip að veiðum á þess-
um stöðum.
2 3. ágúst. Veiðbjallan flaug í dag
kl. 5 frá Siglufirði inn Skagafjörð og út
fyrir Skaga, siðan inn Húnaflóa að Vatns-
nesi og þaðan að Grímsey á Steingríms-
firði. Siðan vestur með Ströndum og yfir
Furufjörð og Jökulfirði til Isafjarðar.
Engin síld sást á öllu svæðinu nemaör-
fáar torfur 1—2 sm. norður af Vatnsnesi.
31. ágúst. Veiðibjallan flaug i dag
2l/s kl.st. út að Grímsey, þaðan austur
og upp aðlandi nióts við Tjörnes. Nokkr-
ar torfur sáust við Grímsey, og einar
4—5 út af Mánareyjum, ekki unnt að
segja með vissu, hvort upsi eða síld, en
að líkindum síld. Stillt og bjart veður
eins langt og séð varð, en skýjað. Nokk-
ur skip sáust, en að eins eitt að veiðum.
3. september. Veiðibjallan flaug í
dag frá Akureyri austur með landi til
Austfjarða, nokkrar sildartorfur sáust ca.
1 sm. N. A. af Flatey og sömuleiðis N.
A. af Mánareyjum, nokkur skip sáust,
sum á leið inn, hlaðin, og eitt að veiðum.
Bjart veður svo langt sem séð varð, hvasst
sunnan Héraðsflóa, annars stillt.
13. september. Veiðibjallan flaug
í dag frá Seyðisfirði til Akureyrar, síld