Ægir - 01.11.1930, Page 16
246
ÆGIR
sást 1—2 sm. N Sauðanes á Langanesi, og
1—2 sm. N af Flatey, stilltog gott veður.
Sendar voru út 38 tilkynningar, og var
þeim öllumútvarpað frá Reykjav. á kvöld-
in kl. 7,45 og á morgnana kl. 8,45, ef
þörf gerðist. Auk þess var svo ráð fyrir
gert, að allar þessar tilkynningar yrði
festar upp á Akureyri og Siglufirði og
tók stjórn Síldareinkasölunnar á Akur-
eyri að sér að sjá um þetta.
Telst svo til, að flognir hafi verið ná-
lægt 26000 kílómetrar til síldarleitar á
sumrinu 1930. Leitað var í samtals33 daga,
en 38 dagar hafa fallið úr eftir að byrjað
var á leitinni, mestmegnis vegna óhag-
stæðs veðurs, en einnig vegna áðurnefndr-
ar bilunar á flugvélinni. Bagalegt má eink-
um telja, að dagarnirl.—9. ágúst féllu úr.
Síldargöngurnar 1930.
Ef athugaðar eru nánar tilkynning-
arnar um síldartorfur, er sézt hafa úr
lofti, er bersýnilegt að allverulegur munur
er á Síldargöngunum i ár og í fyrra
sumar.
Sumarið 1929 lá hafís á Húnaflóa mest-
allan tímann, og virðist hafa króað sild-
ina inni, þvi að mestallan síldartímann
1929 var mikil veiði á Húnaflóa.
1 ár hefur verið meiri hreyfing á sild-
inni, en um miðbik síldartímans eða
fram undir miðjan ágúst, hefur mest
sézt af sild vestan og austan við Skagatá
og inni á Skagafirði, ennfremur á Eyja-
firði utanverðum og víðsvegar annars-
staðar hafa síldartorfur sézt, einnig á
Austfjörðum, einkum á Reyðarfirði, Norð-
firði, Seyðisfirði og Vopnafirði.
6. — 2 0. júlí sáust sildartorfur að
verulegum mun hjá Kálfshamarsvik og
NV af Skalla, norður af Málmey og i
Eyjafjarðarmynni, NV af Rifstanga og
Raufarhöfn, og austur á Vopnafirði, NV
og SA frá Bjarnarey, sbr. I. uppdrátt.
21. — 3.1 . j ú 1 í sást mjög mikið af
síld norðaustur af Horni, en engin á
Húnaflóa nema nokkrar torfur austur af
Vatnsnesi. Þá sást síld vestan Skagatáar
og mikil síld á Skagafirði milli Drang-
eyjar og Reykjastrandar, inni á Selvík,
kringum Drangey og Málmey, útafHofsós,
sömuleiðis allmikil síld NV af Siglufirði,
og inn allan Eyjafjörð, á utanverðum
ólafsfirði, beggja megin Hriseyjar, útaf
Grenivík og Hjalteyri.
Sunnan og vestan at Grímsey sást
einnig mikil sild, kringum Flatey, eink-
um í suðaustur, ennfremur á vestanverð-
um Skjálfanda og norðvestur af Mánar-
eyjum, innarlega á Þistilfirði og á Aust-
fjörðum, á Reyðarfirði, Norðfirði, Seyð-
isfirði og Vopnafirði, sbr. 2. uppdrátt.
10. — 23. ágúst, sást mjög mikil sild,
einkum norður af Vatnsnesi og djúpt af
Húnaflóa, síðan frá Skagaströnd og þaðan
á öllu svæðinu hjá Kálfshamarsvík, Skalla,
Skagatá og langt inn á Skagaströnd og
þaðan einkum vestanmegin milli Drang-
eyjar og Reykjastrandar, sömuleiðis djúpt
undan Siglufirði, undan Ólafsfirði og
Héðinsfirði, inn Eyjafjörð inn undir Sval-
barðseyri og einkum mikið af síld frá
Gjögurtá í austur og suður fyrir Flatey.
Þá sást allmikil sild suður af Grimsey
og vestur af Tjörnesi, en einna mest í
Axarfirði austanverðum. Ennfremur sást
síld norður af Rifstanga og fyrir sunnan
Langanes inn við land, sjá 3. uppdrátt.
28. ágúst til 15. september.
Eftir miðjan ágúst minnkaði síldveiðin
mjög, enda sáust á tímabilinu frá 28.
ágúst til 15. sept. tiltölulega fáar sildar-
torfur. Síld sást þá að eins á Húnaflóa,
örfáar torfur norður af Vatnsnesi við
Fáskrúðssker, og ein torfa út af Bálka-
staðarnesi. Á Skagafirði sást að eins síld
norðaustur af Málmey. Fyrir sunnan
Grímsey sást enn nokkur síld og kring-