Ægir - 01.11.1930, Síða 23
ÆGIR
253
hinn mikla hörgul á beitu (smokkfiski)
allan ágústmánuð, er bátar eyddu bezta
tíma sumarsins til að leita hennar. Ut
af þessu hefur sú uppástunga enn á ný
komið fram, að beitu væri safnað í kæli-
hús hér og þar, en hún haft lftinn fram-
gang, þvi fiskimenn eru andvígir því að
leggja nokkuð í kostnað til þess að afla
þeirrar beitu, sem þeir sjálfir þykjast
geta náð, en geymsla hennar og kæling
hafa kostnað i för með sér. Auk þess telja
fiskimenn nýja beitu miklu betri en kælda
eða frysta og hafa litla trú á henni. Um
þessar mundir berast fréttir viða að um
beituleysi og auk þess hafa stormar og
hafrót heft fiskveiðar meiri hluta mán-
aðarins, sem er að líða.
Fundargjörð.
Árið 1930, 15. nóvember, var fundur
haldinn í Fiskideildinni »Framtiðin« á
Eyrarbakka. Fundarstjóri Guðm. Jóns-
son útvegsmaður, skrifari Bjarni Eggerts-
son búfræðingur.
1. Á fundinum var mættur erindreki
Fiskifélagsins, Arngrimur Fr. Bjarnason.
Flutti hann i fundarbyrjun langan og
fróðlegan fyrirlestur um samvinnumál
fiskimanna og útgerðarmanna, lýsti einnig
horfunum með fisksölu, sem eru mjög
*skyggilegar, eins og nú standa sakir, helztu
i'áðin til að standast j'firvofandi kreppu-
tíma, taldi hann samtök og samvinnu
útgerðarmanna og sjómanna. Tók mörg
dæmi, einkum frá Norðmönnum og Fær-
eyingum, bæði með sölu afla, og inn-
kaup til útgerðar. Minntist hann svo á
ýmsa starfsemi Fiskifélags Islands, og
verkefni, sem eru þar i undirbúningi,
með nýjum starfsmönnum, svo sem vél-
fræðings- og fiskifræðings ráðunautum.
Fyrirlesturinn var þakkaður af Bjarna
Eggertssyni og Guðm. Jónssyni, enda var
erindið ágætlega flutt, og málið ljóst og
skipulega rakið. Hófust svoumræðurum
erindið, og leituðu fundarmenn ýmsra
upplýsinga um málið hjá fyrirlesara, sem
hann svaraði greinilega.
2. Fundarstjóri las upp bréf frá Fiski-
félagi íslands um ýmisleg viðkomandi
sjómannamálum, um það töluðu fund-
arstjóri, Bjarni Eggertsson og erindrek-
inn.
3. Stjórn deildarinnar var íalið að semja
skýrslu um merkingu veiðarfæra á Eyr-
arbakka, eftir upplýsingum frá farmönn-
um.
4. Ivosnir 2 menn til að mæta á fjórð-
ungsþingi, er háð verður í Reykjavik 5.
des., þeir: Jón Helgason útvegsmaður og
Porleijur Guðmundsson form. deildar-
innar, og til vara: Bjarni Eggertsson og
Arni Helgason útvegsmaður.
5. Þá var rætt um ýms mál, sem til
framkvæmdar þyrftu að komast sem fyrst,
svo sem dýpkun á Skúmstaðaós, brim-
merki í Selvogi, dagleg uppfesting veður-
skeyta, og sandágangur á stórskipaleið-
ina, höfnina og bátalegurnar, og væntir
fundurinn fastlega, aðstoðar Fiskifélags
íslands í málunum.
Fleiri mál ekki tekin til umræðu, var
því fundi slitið.
Guðm. Jónsson, Bjarni Eggertsson.
fundarstj. ritari.
Símskeyti
til Stjórnarráðsins frá Kaupmannahöfn,
13. nóv. 1930.
»Sendisveitin í París hefur simað, að
búst sé við tollhækkun á verkuðum fiski
í Frakklandi næstu dagá, úr 82 upp í
150. ________