Ægir - 01.11.1930, Side 24
254
ÆGIR
Segl.
Flestir þeir, er hér stunda sjó eru ann-
aðhvort á gufuskipum, mótorbátum eða
togurum. Er því ekki við að búast, að
þekking þeirra á seglum sé mikil eða á-
hugi fyrir þeim, en þar eð þau eru oft
eitt helzta bjargráðið, má ekki að öllu
ganga fram hjá þeim, þótt ekki verði
farið út í, hvernig taka á saman rásegl,
svo sem bramsegl og royal, slá þeim
undir og undan og setja þau. Að skýra
slíkt á pappirnum er næsta þýðingarlítið
og kemur að litlu liði ertilkasta kemur.
Menn verða að sjá þá vinnu fyrir sér og
komast í hana sjálfir, til þess að skilja
allan gang.
Segl eru fyrirskipuð hér á flestum bát-
um og skipum þótt vélaafl hafi og með
þau yprður að fara vel, aðgæta hvort
þau ekki fúni, viðra þau þegar færi gefst
og athuga vel, að þau séu til taks þegar
ástæða er til að nota þau.
Til góðrar meðferðar á seglum telst,
að þau séu lögð þannig er þeim er fest,
að vatn geti hvergi í þeim staðið og máske
frosið, að beituteningar eða annað fitu-
kent sé eigi geymt i þeim, að hlífar séu
hafðar utan um þau og þau séu börkuð
eða lituð.
ísrek við Grænland ogísland
árið 1929.
10. skýrslan um ísrek í höfunum kring-
um Grænland og við ísland, birtist í 11.
tbl. Ægis í fyrra. Nú kemur 11. skýrslan,
lika síðar en ég hefði kosið, meðfram
vegna þess, að ég hefi verið nokkuð oft
fjarverandi síðan heimildarrit milt, Nau-
tisk meterologisk Aarbog 1929, kom hingað
í vor er leið.
í heild tekið var ís nokkuð meiri þetta
ár, en siðustu 6 ár; en við athugun á
kortunum (apríl—ágúst), þar sem meðal
útbreiðsla issins í hverjum mánuði er
sýnd með stykkjalínu, og við samanburð
við kortin undanfarin 5—6 ár má sjá,
að ísmagnið á svæði því, sem þau ná
yfir, hefur ekki verið meira en á þeim
árum o: með minnsta móti.
1 Barentshafi (Dumbshafi), var óvenju-
mikill ís í apríl og maí, og vegna þess
hve ísinn ýlti fast á úr NA, var óvana-
lega mikil ís við vesturströnd Spitsbergen,
rann hann saman við ísinn við A-strönd
Grænlands og mikið sunnar en vanalega.
í vestanverðu Norðurhafi, o: við A-
slrönd Grænlands og í Grænlandshafi
var svipað um ís og undanfarin ár, nema
árið 1928, er hann var mun meiri; um
vorið mun hann hafa verið allmikill, en
rak mikið suður með, svo að með öllu