Ægir - 01.11.1930, Page 26
256
ÆGIR
N-Grænlandi var fremur íslítið þegar
kom fram í júlí (sbr. Gottaleiðangurinn),
en þá ýttist hann mikið vestur á bóginn
í Grænlandshafi, sennilega af þvi að sam-
tímis blés N-stormur milli íslands og
Jan Mayen og S-stormur á sunnanverðu
Grænlandshafi (úti fyrir Angmagsalik).
Fór isinn að sjást út af Hornströndum
um miðjan mánuðínn og við lok hans
kom á utanverðan Húnaflóa, allt inn undir
Reykjanesið og yfir að Skaga svo mikill
ís, að siglingar urðu ógreiðar og lá hann
þannig fram til 23. ágúst, er hann rak
skyndilega í burtu í N-stormi. Allan
þenna tíma var Halinn undir ísi og stund-
um teygði isbreíðan sig nokkuð suður
með Vestfjörðum, en auður sjór fyrir
innan hana austur fyrir Horn. Eftir 28.
ág. var allur ís horfinn frá Hornströnd-
um.
Við V-strönd Grænlands var ísinn með
allra minnsta móti, jafnvel minni en 1928.
Stórisinn við S-strönd landsins var öllu
minni en þá og alveg horfinn í ágúst.
Yfirleitt var ísinn fyrir vestan Græn-
land (í Davissundi og Baffinsflóa) óvenju-
lítill og í sundunum norður af Ame-
ríku voru leiðir eins greiðar og undan-
farin 4 ár.
Á Newfoundlands-bönkunum var ó-
venju mikið rek af borgarís.
Sjávarhitinn við Island mun hafa lækk-
að töluvert frá því sem var árið áður,
og eflaust hefur ísinn kælt sjóinn við
NV- og N-ströndina allmikið um sum-
arið, þvi að í kringum hann og inni í
honum er hitinn aldrei langt fyrir ofan
0° (0—2°). B. Sœm.
Druknun. Maður féll nýlega útbyrðis
af vélbátnum »Ásgrími« á Siglufirði og
druknaði, Sigurður ólafsson að nafni,
ættaður af Austfjörðum.
Börkun á seglum.
Auk þess, að segl endast lengur þegar
þau eru lituð eða börkuð, þá eru börkuð
segl miklu voðfeldari og betri viður-
eignar í frostum þegar rifa á eða taka
saman.
Efni iil að barka úr:
I.
1 120 litra af vatni er látið:
Um Vs kútur af hrátjöru,
6—8 kíló af tólg,
21/2—3 kíló af katechu,
3 kiló rautt duft (okker).
Blanda þessi skal soðiní 3klukkustundir.
II.
í 120 litra (lagartunnu af vatni er látið:
8 kiló af hrátjöru,
8 kíló af smjörlíki eða tólg,
5 kíló af katechu.
Blandan er soðin í 5—6 klukkustundir
og borin heit á seglin með mjúkum kústi,
seglin svo brotin saman og látin liggja
tíma áður en þeim er slegið undir.
Stórt skip ferst. Eimskipið »Luise
Leonhardt« lenti í fárviðri, og missti
stýrið og strandaði á sandrifi undan Gross-
vogelsand. Skipshöfnin, 30 manns, drukn-
aði.
Saltfisksmarkaðurinn. Fregn frá Bil-
bao á Spáni segir, að fiskinnflytjendur
þar hafi komið sér saman um að kaupa
ekki þann fisk, sem þangað er sendur í
umboðssölu.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.