Ægir - 01.12.1930, Qupperneq 12
264
ÆGIR
manna eða annara sem láta meta fisk
til útflutnings, en þeir eiga að vera allt-
af við hendina þegar þeirra er þörf að
meta fisk og mega ekki fara út af staðn-
um, nema tilkynna það yfirmatsmanni.
Á smástöðum, eða þar sem litill fiskút-
flutningur er, virðist því ekki um svo
arðberandi atvinnu að ræða fyrij fiski-
matsmenn, að mjög sé eftirsóknarvert,
og galli er það á grein H. H., að hann
færir ekki til hve mikið matskaup þess-
ara fiskimatsmanna á Raufarhöfn sé ár-
lega. K. B.
-Skýrsla
erindreka Austfirðingafjórðungs
frá 1. júlí til 30. sept. 1930.
Ég gat um það i síðustu skýrslu minni,
að þorskveiðar hefðu ekki byrjað fyr en
í júnímánuði, í verstöðvum hér fyrir
norðan Seyðisfjörð, svo að yfirlit yfir
veiðar þar, hefði ekki verið hægtaðtaka
á þá skýrslu. Nú er vertið á enda á
þessum stöðum, stendur vanalega yfir
frá i júní og lengst til septemberloka.
Ég skal því hér setja yfirlit yfir fisk-
veiðarnar í þessum verstöðvum :
Borgarfjörður og Yikur: Útgerð
á þessum stöðum er nú orðin lítil. í
Húsavík var allt fram að þessu ári dá-
lítil útgerð árlega, frá 3 — 8 róðrarbátar,
en nú í sumar hefir engin útgerð verið
þar, nema hvað bændur þar hafa ein-
stöku sinnum skroppið á sjó þegar þeir
hafa haft tíma til frá landbúskapnum. Á
Glettingsnesi var einnig dálitil útgerð
áður, 3—5 róðrarbátar, en nú engin. Á
báðum þessum stöðum aflaðist oftast
vel og stundum ágætlega. Á Borgarfirði
er útgerð einlægt að minnka. í ár voru
gerðir þar út 3 opnir vélbátar og einn
róðrarbátur, og var afli á þá um 160
skpd. í fyrra voru bátarnir, 3 opnir vél-
bátar og 4 rórðarbátar og öfluðu þárúm
250 skpd.
Vopnafjörður: Úaðan hafa verið
gerðir út í sumar 10 opnir vélbátar og
2 róðrarbátar, sem öfluðu um 970 skpd.
af saltfiski (þurrfiskviglj. Par að auki
öfluðu þessir bátar og seldu nýtt, um 40
tonn af ýsu, sem var seld Færeyingum
sem ísuðu hana og fluttu út þannig. í
fyrra var sama bátatala og afli þá um
970 skpd. Fiskur sá (ýsan) sem Færey-
ingarnir keyptu, keyptu þeir slægða og
borguðu 12 aura danska fyrir kilóið.
B a k k a fj ö r ð ur : Þaðan gengu í sum-
ar 3 opnir vélbátar og 5 róðrarbátar.
Þeir öfluðu rúm 700 skpd. Sama báta-
tala í fyrra, sem öfluðu þá rúm 1000
skpd.
Gunnólfsvík og Hafnir: Þarvoru
gerðir út 7 opnir véibátar, sem færðu á
land um 340 skpd. Þar að auki seldu
þeir eitthvað af nýrri ýsu til Færeyinga
til útflutnings í is. í fyrra var bátatalan
sú sama en afli þá um 600 skpd.
Skálar: Útgerð var þar meiri í ár
en í fyrra, nú gengu þaðan 6 opnir vél-
bátar og 6 róðrarbátar. Bátar þessir öfl-
uðu rúm 800 skpd. og auk þess seldu
þeir nokkuð af nýjum fiski (ýsu), sem
var isaður og fluttur þannig út af Fær-
eyingum. í fyrra voru 8 róðrarbatar á
Skálum, sem öfluðu um 770 skpd. Þetta
er í fyrsta sinni að opnir vélbátar eru
gerðír út frá Skálum, og ég hefi ekki
heyrt annað en það hafi gengið prýði-
lega vel.
Aflinn, á svæðinu frá Borgarfirði að
Skálum, að báðum stöðum meðtöldum,
hefur verið nokkuð minni en í fyrra, það
af honum sem verkað hefur verið sem
saltfiskur. En hvað mikið hefur verið