Ægir - 01.12.1930, Page 14
266
ÆGIR
var mjö£ misjafnlegn feitur, en lifrarlítill,
þó mun betra en árið áður.
Þegar kom fram í maí fiskaðist mest
hrogna- og svilafiskur, bæði á handfæri
og línu. Seint í maí kom ný ganga af
vænum fiski og vel feitum (ekki hrogna-
fiskur) og fannst bafsild í maga margra,
þó náðist ekki hafsíld hér í reknet fyr
en um mánaðmót mai og júní. Frá því
i febrúar, eða fyr, mátti svo heita að
fullur væri sjór af átu, enda svartfugl og
skegla með langmesta móti. Til beitu
höfðu menn fugl, sem gefst vel á
handfæri, en loðnu höfðu menn á línu,
er fékkst. 1 júní og júlí var sæmilegur
afli á djúpmiðum, sama mátti segja um
ágúst og fyrstu dagana af september. Síð-
an hefir ekki fengist fiskur til matar. Þó
halda menn að fiskur sé nógur ef veður
ekki hamlaði.
Eins og að undanförnu hafa 3 Húsa-
vikurkaupmenn keypt hér blautfisk með
hrygg og borguðu mót vöruúttekt. —
Málsíisk 20" og yfir 15" —13 aura kg. Smá-
fisk að 12" 12—8 aura og ýsu, keilu, ufsa
og harðfisk 5 aura kg.
Verzlun H. Geirdal í Grímsey keypti
og talsvert af blautfiski og borgaði tals-
vert hærra verð, þ. e. 16 au. kg. nálega
allan tímann og 13-11 au. smáfisk.
Húsavikur-kaupmenn tlytja sinn fisk til
Húsavikur til verkunar, en V. H. Geir-
dal til Akureyrar. Hafstraumar munu
hafa verið með blýjasta móti hér í sum-
ar, en oft heyrðust sjómenn kvarta um
það, að straumur og löll væri harðara
en venjulega.
Góðs viti þótti oss Grímseyingum það
er vitamálastjóri kom hingað til að mæla
úl vitastæði í sumar. Vonumst eftir vita
bráðlega; hafa menn þráð hann lengi og
ekki að ástæðulausu.
þótt margir áliti, að hér sé ófær höfn
fyrir mótorbáta yfir sumartímann, þá er
þó sannleikurinn sá, að ég, af 20 ára
reynslu, get borið um það, að mótorbát-
ar geta óhultir legið á legunni allt frá
júní þar til seint í ágúst að minnsta
kosti og með litlum tilkostnaði mætti
try«8ja höfnina máske allt árið fyrir
mótorbáta stærri og minni meðan pláss-
ið leyfir.
Fra Siglufirði, Ólafsfirði, Hrísey og
víðar sóttu menn á mótoibátum feikna
afla siðari part sumars austur og norður
af Grímsey, oft í svo vondum veðrum,
að trillur héðan treystu sér ekki að etja
kappi við þá.
Það virðist nú liggja í augum uppi að
til þess að mótorbátaútgerð mætti reka
héðan í allstórum stil að sumrinu, að
minnsta kosti, þyrfti að eins stærri báta,
en nú höfum við, með »trillu«bátunum,
nóga beitu (frystihús í eynni), og nægi-
lega margt fólk. Sjálfsagt virðist lika að
verka allan fiskinn í eyjunni; mundi
ungdóminum hollara að fást við fisk-
verkun en ganga iðjulaus.
Til þess að efla útveginn hér, eins og
að framan er bent á, vantar fyrst og
fremst peninga og aukna þekkingu út á
við um möguleika til útvegs hér í
stærri stil.
I sumar var færeyisk »trilla« hér, en í
fyrra tvær; fengu þeir góðan afla og fóru
ánægðir heim.
Grímsey, 31. október 1930.
Steinólfur E. Geirdal.
Leiðrétting.
í síðasta tbl. Ægis nr. 11, hefur mis-
prentast á bls. 242, 2. dálki: Forseti fjórð-
ungsþings Vestfirðinga kosinn Kr. A.
Kristjánsson, en á að vera : Andrés Krist-
jánsson í Meðaldal.