Ægir - 01.02.1933, Blaðsíða 4
46
ÆGIR
t
Johannes Schmidt.
Prófessor, dr. phil. & scient.
»Dáinn, horflnn . . . . «
Fyrir fáum dögum barst sú sorgarfregn
hingað, að prófessor Johannes Schmidt
væri dáinn. Eg ætlaði varla að trúa því.
Eg hafði kvatt hann heilan og glaðan
fyrir 4 mánuðum á heimili hans, á Carls-
berg og fengið frá honum bréf fyrir rúm-
um mánuði; átti ég því alls ekki áslíku
von. En fregnin var því miður sönn.
Sjólíffræðin hefur með honum misst einn
af sínum ágætustu frömuðum, Danmörk
einn af sínum beztu og frægustu sonum
og ísland göfugan og góðan vin.
Ég hef all-oft haft tækifæri tilað minn-
ast á prófessor Scmidt og fiskirannsókna-
starfsemi hans hér við land og víða um
höf í Ægi, sérstaklega í sambandi við25
ára afmæli Fiskirannsóknanna í 21. árg.
nr. 5, og býst ég við að lesendum blaðs-
ins sé mörgum nokkuð kunnugt um það.
Get ég því vel verið stuttorður og það
því fremur, sem mag. Árni Friðriksson
hefur minnst hans að maklegleikum i
Morgunblaðinu 24. þ. m.
Próf. Schmidt varð ekki ellin að meini;
hann var fæddur 2. jan. 1877 í Jægers-
pris á Sjálandi, þar sem faðir hans var
hallarráðsmaður. Æskuheimili hans var
á mjóu nesi milii Roskilde- og Isefjord,
og kynntist hann því snemma sjónum —
kyrrlátum dönskum innfjarðasjó, að vísu,
og lífinu i honum, á smásveina visu, en
síðar sem aðstoðarmaður á líffræðistöðinni
heimahöfunum yfirleitt; svo færði hann á
víkinga vísu út kvfarnar, lagði undir sig
úthöfin, fyrst Norður-Atlantshafið með
Miðjarðarhafi og Svartahafi og að síðustu, á
ferðinni miklu kringum jörðina, Iíyrrahaf,
Indlandshaf og Suður-Atlantshaf.
Annars leit ekki í fyrstu út fyrir, að
Schmidt yrði neinn sjógarpur og einn af
»the Founders of Oceanography« (stofn-
endum haffræðinnar), eins og Bretar
telja hann, því að hann lagði á náms-
árum sínum mesta stund á jurtafræði
(samdi t. d. í félagi við annan mann,
stóra bók um bakteríur), tókst að loknu
prófi ferð á hendur til Austur-Asíu (Sí-
am) rétt fyrir aldamótin, til þess að rann-
saka þar hinn einkennilega leirugróður
hitabeltisstrandanna, mangróve-skógana
og varð (1903) doktor fyrir rit sitt um
það efni. Á þeirri ferð kynnlist hann út-
höfunum og eftir að hann kom heim,
varð hann aðstoðarmaður á líffræðistöð-
inni (Biologisk Station), hjá hinum merka
brautryðjanda á sjólíffræðisviðinu, Dr. C.
G. J. Petersen, og hefur hjá honum feng-
ið ágætan undirbúning undir starf það,
sem svo varð lífsstarf bans. 1910 varð
hann forstöðumaður líffræðideildar Carls-
berg-rannsóknastofunnar og prófessor að
nafnbót.
Árið 1902 var samþjóða sjó- og fiski-
rannsókna samvinnan bafin og Dönum
falið að framkvæma þær rannsóknir við
Færeyjar og ísland. Vorið 1903 gerðu
þeir út togarann »Thor« (síðar björgun-
arskipið »Pór«), sem rannsóknarskip til
íslands og veitti Schmidt fiskirannsókn-
unum forstöðu.
Pegar þeir Schmidt komu út hingað,
gátu þeir tekið undir með Jónasi og sagt:
»mjög þarf nú að mörgu að hyggja«, því
að sjórinn umhverfis ísland var þá lítið
plægður akur, frá sjónarmiði náttúru-
fræðingsins séð, en þeir félagar plægðu
ólrauðir og skáru upp mikla nýja þekk-
ingu, enda þótt tíminn og féð til rann-