Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1933, Blaðsíða 27

Ægir - 01.02.1933, Blaðsíða 27
ÆGIR 69 Landhelgisgæzlan. 1 12. tbl. Ægis f. á. er aðsend grein um strandgæzluna fyrir Vestfjörðum síð- astliðið sumar, undirrituð af þrem Arn- firðingum. Par sem telja má landhelgisgæzluna mikilsvarðandi mál, er ekki nema eðli- legt að allt sem um það birtist á prenti, veki sérstaka athygli. Svo er um greinarkorn þetta. En nokkuð vantar á, að fullrar var- úðar sé gætt í þvi, að halla hvergi réttu máli. Og þar sem talsvert hefur verið gumað í útvarpi, blaðagreinum og nú síðast í Ægi, um áðurgreinda landhelgis- gæzlu, verður vart hjá því komist, að einhverjir þeir, er hlut eiga að máli og á varðbátnum voru, láti það með öllu afskiptalaust. Bið ég því Ægi um rúm fyrir nokkr- ar athugasemdir. Fyrnefndir greinarhöfundar segja, að Fiskifélagsdeildin »Framtíðin á Bíldudal hafi falið sér »að leita upplýsinga meðal sjómanna og formanna hér við fjörðinn (Arnarfjörð), um álit þeirra á því, hvern- ig strandgæzlan hafi verið framkvæmd og að hverjum notum hún hafi komið«. Ætlunarverkið er góðra gjaldavert, en upplýsingarnar eru ekki á marga fiska. Mjög ákjósanlegt hefði þó verið að fá þær birtar eins og þær komu frá for- mönnunum. Þeim mun æskilegri, sem greinarhöfundarnir eru »reiðubúnir til« að láta þá »staðfesta þær með undir- skrift sinni«. Á hinn bóginn verður ekki séð, að þau málsgögn, er þremenningarnir enn hafa lagt fram, sanni að strandgæzlan fiafi verið i ólagi, þótt þeir »einróma á- líti« að svo hafi verið. Það er bara þeirra »álit«, annað ekki. Og ef skilja á áður tilfærðar umsagnir svo, að »sjómenn og formenn« við Arn- arfjörð, ætli að staðfesta með undirskift sinni að eins þær »upplýsingar«, er í greininni standa, og aðrar ekki, þá býst ég rétt við, að einhverjir heltist úr lest- inni, þeir verði ekki allir »reiðubúnir«. Menn geta skrafað og skeggrætt um ýmsa þá hluti sín á milli, er ekkert eiga skylt við sönnunargagn fj'rir landhelgis- brot. Og ef ráða má nokkuð af þeim heim- ildum, er greinin lætur lesandandanum i té, þá virðist það helzt vera, að ekki sé af miklu að taka heima fyrir, þegar greinarhöfundar þurfa að fara að seilast eftir sögu úr Reykjavík, þess efnis, »að báturinn hafi ekki getað við ráðið, af því að togararnir hafi togað í kringum hann í landhelginni« I Þeim finnst sjálf- um þessi saga »ótrúleg«, »um bát, sem gangi 7—8 sjómílur«. Og er slíkt ekki láandi. En samt nota þeir söguna sem for- sendur til að fella á þá ályktun »að ann- að verði því ekki sagt, en að gæzlan hafi ekki komið að því liði sem skyldi og vera ætti 1« Þetta eru — vægast talað — léleg plögg í jafn alvarlegu máli og landhelgisbrot er. Kunnugir menn á Vestfjörðum vita það, að af öllu svæðinu, sem bátnum er ætlað að vera á verði, frá Bjargtöngum að Hornbjargi, er nauðsynin á góðri strandgæzlu víðast hvar mikil, en brýn- ust við Arnarfjörð ogísafjarðardjúp, sér- staklega siðari hluta sumars, svo og vor og haust. Strandvörn þann tíma er ómissandi. En þótt langsamlega mestur tími báts- ins fari í það, að verja tvo hina fyrnefndu staði, er síður en svo að hann megi láta aðra staði afskipta. Arnfirðingar geta því

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.