Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1933, Blaðsíða 17

Ægir - 01.02.1933, Blaðsíða 17
ÆGIR 59 Daurella Heredia Hortet Trueba y Pordo Aðrir Alls islenzkur Janúar )) 300,0 » » 256,0 556,0 Febrúar 561,5 234,1' 551,4 150,0 » 1 497,0 Marz 768,7 » 514,5 249,0 » 1 532,2 Apríl » » » » » » Maí 50,0 » 600,6 232,9 » 883,5 Júní . 150,0 212,5 » » 29,0 391,5 Júlí 200,0 237,5 471,0 » » 908,5 Agúst 313,0 » 3,0 » » 316,0 September » 300,0 714,5 200,0 125,0 1 339,5 Október 350,0 » » » 195,0 545,0 Nóvember 563,0 300,0 889,6 450,0 80,0 2 282,6 Desember » » » » » » Alls 2 956,2 1 584,1 3 744,6 1 281,9 685,0 10 251,8 Innflutningurinn á Færeyska flskin- um byrjaði í marz og var sem taflan sýnir. Eins og menn sjá voru það mest smá- firmun og Trueba y Pardo, sem fluttu inn megnið af færeyska fiskinum, en um hann var samið áður en Fisksölusam- lagið var stofnað. Var fiskurinn þá boð- inn fram fyrir 20 sh. pakkinn og jafn- vel minna. Ógnar mér að hugsa til hvern- ig farið hefði með verðið á okkar fiski, ef Sölusambandið hefði ekkí verið stofn- að, og islenzki fiskurinn hefði verið boð- inn fram, ef til vill i umboðssölu, í keppni við þann færeyska. Þá vissi enginn það, sem við höfum séð síðan, að Færeying- ar settu mikið af fiski þeim inn á Barce- lona-markaðinn, sem vanalega hefur far- ið til Ítalíu, og var þá ekki búist við að Færeyingar ættu mikið meira af Barce- lona-fiski, en það sem búið var að selja. Neyzlan á árinu hefur verið mjög góð, því auk þess sem inn hefur verið flutt, hygg ég að birgðir hafi lækkað um rúm- lega 1000 lestir. 1 ársbyrjun 1932 voru birgðir áætlaðar 3300 lestir, en ég á bágt með að trúa að þær hafi verið nema 2200 nú um áramótin. Er þá tekið með- altal og tillit til hverjar líkur eru, af því sem innflytjendur sögðu mér og keppi- nautar þeirra. Ræðismaður vor áætlar birgðirnar 3200 lestir. Féllst hann á að það mundi vera of mikið, en vildi síður leið- rétta töluna allt í einu vegna Færeyinga, sem einnig fá skeyti hans, og var ég á sama máli, — vegna Færeyinga. í Bilbao hafa birgðir aftur á móti auk- ist um 700 lestir, en þrátt fyrir það hef- ur neyzlan verið mikið betri en áður. Ekki höfum við þó notið hennar, svo mikið sem skyldi, en hún hefur aðmestu fallið til Norðmanna og Færeyinga. Fluttu Norðmenn inn 1750 lestir í júní, júlí og ágúst fyrir lágt verð. Var íslenzkur fisk- ur þá mjög geúginn til þurðar, en alger- lega þrotinn allan ágústmánuð. Komu hinar reglubundnu ferðir frá Noregi sér þá vel, þvi hægt var að panta fisk með mjög litlum fyrirvara. Auk þess sem Sölusamband ísl. fisk- framleiðenda á þakkir skyldar fyrir að festa fiskverðið, landsmönnum til stór- hagnaðar, hygg ég að mikið af þeirri auknu neyzlu, sem orðið hefur bæðihér á Spáni og Portúgal, megi þakka starf- semi þess, því verðfestingin hefur dregið

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.