Ægir - 01.02.1933, Blaðsíða 6
48
ÆGIR
Aðalfundur
Fiskifélags ísland.
Ár 1933, föstudaginn 10. febrúar, var
aðalfundur Fiskifélags íslands settur í
Ivaupþingssalnum í Eimskipafélagshús-
inu. Hófst fundurinn kl. 14.
Forseti félagsins setti fundinn. Stakk
hann upp á Geir Sigurðssyni til þess að
stýra fundinum ogvar hann samþ.
Fundarstjóri stakk upp á Arnóri Guð-
mundssyni til þéss að vera ritari fund-
arins og var það samþykkt.
Fundarstjóri rannsakaði á hvern hátt
hefði verið boðað til fundarins. í því
sambandi gat Arngrímur Bjarnason ftr.
Þingeyrardeildar þess, að hann teldi að-
alfund þenna ekki löglega boðaðan, þar
sem auglýsing um hann hefði ekki verið
birt i Lögbirtingablaðinu fyr en 15. des.
Út af þessari athugasemd gat forseti þess,
að umrædd auglýsing hefði verið send
Stjórnarráðinu viku áður en hún var
birt, en af einhverjum ástæðum hefði
hún ekki verið birt fyr í Lögbirtingabl.
Fundarstjóri lýsti þá yfir, að löglega
væri til fundarins boðað, þar sem 2 viku-
mánuðir væru liðnir frá því, að til hans
var boðað og að gengið yrði til dagskrár.
Þessar deildir sendu fulltrúa á fundinn.
1. ísafjarðardeild: Sig. Kristjánsson rit-
stjóri.
2. Súgfirðingadeild : Þorst. Þorsteinsson
skipstj. Rvík.
3. Þingeyrardeild: Arngrím Bjarna-
son bóndi á Mýrum.
4. »Báran« á Akranesi: Ólaf Björns-
son kaupm. á Akranesi.
Umboð þessara fulltrúa voru samþ. í
einu hljóði.
Var þá gengið til dagskrár, sem var
svo hljóðandi:
1. Forseti gerir grein fyrir störfum fé-
lagsins á liðnu ári.
2. Magister Árni Friðriksson: Fiski-
rannsóknir.
3. Þorsteinn Loftsson. Skýrsla.
4. Kosning 4 aðalfulltrúa og 4 varaftr.
5. Kosning 2ja endurskoðenda og 2ja
varaendurskoðenda, til 4 ára.
6. Önnur mál, sem upp kunna að
verða borin.
I. Fundarstjóri gaf því næst forseti fé-
lagsins orðið og gaf hann ítarlega skýrslu
um starfsemi félagsins á liðnu ári og
skýrði frá hag þess.
Engar umræður urðu um skýrslu for-
seta.
II. Var þá tekið fyrir annað mál á dag-
skrá og gaf mag. Árni Friðriksson fróð-
lega skýrslu um fiskirannsóknir sínar
árið 1932, bæði þorsk og sildarrannsóknir.
III. Þá gaí vélfræðingur félagsins Þor-
steinn Loftsson, skýrslu um starfsemi sína
á liðnu ári og drap hann á ýmsar nýj-
ungar á sviði vélfræðinnar. Engar um-
ræður urðu um þessar skýrslur.
IV. Fór þá fram kosning 4 aðalfull-
trúa og 4 varafulltrúa á Fiskiþing til
næstu 4 ára.
Dr. Bjarni Sæmundsson, sem verið
hefur fulltrúi aðaldeildar á Fiskiþingi frá
öndverðu, baðst undan endurkosningu.
Þessir hlutu kosningu sem aðalfullrúar:
Jón ólafsson bankastjóri með 32 atkv.
Magnús Sigurðsson bankastjóri 29atkv.
Þorsteinn Þorsteinsson skipstj. 26 atkv.
Geir Sigurðsson skipstj. með 19 atkv.
Varafulltrúar:
Hafsteinn Bergþórsson skipstj. 20atkv.
Árni Friðriksson mag. 13 atkv.
Benedikt Sveinsson bókav. 10 atkv.
ólafur Thors alþm. 9 atkv.
V. Endurskoðendur voru endurkosnir
til 4 ára: Magnús Sigurðsson bankastj.