Ægir - 01.02.1933, Qupperneq 7
ÆGIR
49
og Brynjúlfur Björnsson tannlæknir (með
lófataki).
Varaendurskoðendur: Georg ólafsson
með 22 átkv. og Matth. ólafsson endur-
kosinn með 20 atkv.
Þegar .hér var komið ákvað fundarstj.
hlé til kl. 17.
Kl. 17 var fundinum haldið áfram á
sama stað.
Tekið fyrir:
VI. Önnur mál, sem upp kunn aðverða
borin. Benedikt Sveinsson hóf umræður
um dragnótaveiðar. Rakti hann ítarlega
sögu þessa máls og afskiptí Alþingis af
því. Taldí hann, að veiði þessi hefði orð-
ið fiskimönnum til litils gagns, heldur
hið gagnstæða. Sömuleiðis hefði reynzl-
an sýnt, að veiði þessi spillti annari veiði
og grandaði ungfiski. Ræðumaður bar
fram svo hljóðandi tillögu í tveim liðum:
a. Aðalfundur Fiskifélags Islands skor-
ar á næsta Alþingi að setja lög, er láti
alla þá, er rétt hafa til veiða í landhelgi
við ísland, gegna sömu skyldum full-
komlega að því er snertir allskonar ínn-
flutningsgjöld og útflutningsgjöld, vita-
gjöld, hafnargjöld, tekjuskatt o. s. frv.,
svo endi verði bundinn á það óþolandi
misrétti, er verið hefur og enn þá er
látið viðgangast í því efni.
b. Ennfremur skorar fundurinn á næsta
Alþingi að setja ákvæði um að lögilda
þurfi af íslenzkum stjórnarvöldum, drag-
nætur þær, sem leyft er að veiða með í
landhelgi, með greinilegum og fullnægj-
andi einkennum, til þess að tryggt sé,
að þær hafi heimilaða möskvastærð og
annan frágang, en þungur sektir liggi
við ef út af er brugðið.
Árni Friðriksson fiskifræðingur og Ósk-
ar Halldórsson ræddu um nokkur atriði
í ræðu frummælanda. Sigurður Krist-
jánsson ritstjóri taldi nokkurn eðlismun
vera á brotum innlendra og erlendra
fiskimanna þeirra, sem sekir verða um
brot á lögunum um bann gegn botn-
vörpuveiðum í landhelgi og benti á, hvort
ekki mundi tiltækilegt að íhuga breytingu
á sektarákvæðum út frá þessari for-
sendu.
Ýmsir fleiri tóku til máls um tillögu
Benedikts Sveinssonar og að loknum
umræðum, var hún borin undir atkvæði
í tvennu lagi. Var fyrri hluti tillögunnar
samþykktur með öllum greiddum at-
kvæðum, en síðari hlutinn með öllum
greiddum atkvæðum gegn einu. Arngr.
Bjarnason spurðist fyrir um það, hvað
liði undirbúningi á lögum félagsins, sem
síðasta Fiskiþing fól félagsstjórninni að
framkvæma.
Svaráði forseti fyrirspurninni á þá leið,
að tillögur um breytÍDgar á lögum fé-
lagsins, mundu verða lagðar fyrir næsta
Fiskiþing.
Arngr. Bjarnason bar fram tillögu um
það að næsti aðalfundur félagsins, yrði
ekki háldinn fyr en um líkt leyti og
næsta Fiskiþing.
Þessari tillögu andmælti forseti félags-
ins með þeirri forsendu, að þá ynnist
ekki tími til að búa mál undir þingið á
aðalfundi. Spunnust nokkrar umræður
um tillöguna. Var hún að lokum samþ.
með 24 atkv. gegn 12.
Óskar Halldórsson bar fram svohljóð-
andi tillögu :
»Fundurinn skorar stjórn Fiskifélags-
ins að beita sér fyrir þvi, að einkasalan
á .blautsöltuðum fiski verði afnumin nú
þegar«.
Auk tillögumanns tóku til máls: Haf-
steinn Bergþórsson, Benedikt Sveinsson
og ólafur Thors, sem gerði grein fyrir
ástæðum þeim, sem lágu til þess, að
hann gaf út bráðabirgðalögin um einka-
sölu á saltfiski. Ennfremur töluðu Magn-
ús Sigurðsson bankastjóri og Þorsteinn