Ægir - 01.02.1933, Side 8
50
ÆGIR
Þorsteinsson skipstjóri, sem bar fram
svo hljóðandi tillögu:
»Fundurinn skorar á stjórn Fisksölu-
sambandsins að leyfa sölu á blautum
saltfiski, ef verð það, er seljandi getur
fengið, er að áliti stjórnarinnar, viðun-
andi«.
Ymsir fleiri tóku til máls.
Kristján Bergsson bar fram svo hljóð-
andi tillögu:
»Fundurinn lýsir trausti á stjórn Sölu-
sambands islenzkra fiskframleiðenda og
vottar henni þakkir fyrir vel unnið starf«.
Tillagan borin upp og samþykkt með
öllum greiddum atkv. — Þegar hér var
komið tók Þorsteinn Þorsteinsson sína
tillögu aftur.
Þá var tillaga Óskars Halldórssonar bor-
in undir atkv. og felld með öllum greidd-
um atkv. gegn einu.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið.
Geir Sigurðsson, Arnór Guðmundsson,
fundarstjóri. fundarskrifari.
Skýrsla
frá fiskifulltrúanum á Spáni.
Prolongation Urgell, 4—5,
Barcelona 15. jan. 1933.
Þar eð ég hef áður drepið á ýms at-
riði í sambandi við heildverzlun með
saltfisk hér syðra, vildi ég nú gera hreint
fyrir mínum dyrum og minnast á það
helzta, sem ekki hefur verið drepið á
áður.
Þekki ég auðvitað bezt verzlunarhætti
hér í Katalóníu og byrja því á þeim. en
skýri síðan frá þeim, sem frábrugðnir eru
annarsstaðar.
Hér í Barcelóna eru 8 innflytjendur.
Annarsstaðar við Miðjarðarhafið eru þeir
sjaldnast nema 2—4, en nokkuð fleiri í
hverjum bæ á norðurströndinni og i
Portúgal. Auk sallfisksins selja flestir
þeirra saltaðar sardínur í byttum, sem
hingað koma frá landi Baskanna, hert-
an sjóál (congrio) og sundmaga. í Bilbao
og Sevilla selja innflytjendurnir þar oft
ýmsa framleiðslu frá Suður-Ameríku, svo
sem kaffi.
Innflytjendurnir standa i fremstu röð
kaupmanna á Spáni og eru flestir prýði-
lega vel menntaðir menn. Einn þeirra,
Don Santiago Daurella, er doktor í lög-
um, en faðir hans, er stofnaði firmað,
var einn af helztu heimspekingum síns
tíma, og merkustu vísindamönnum Spán-
ar. Var hann prófessor í rökfræði og
heimspeki við háskólann í Barcelona og
vísirektor hans.
Eru flest firmun gömul og hafa byrjað
á tímum feðra þeirra er nú standa fyrir
þeim, og standa á gömlum merg, enda
er ekki auðhlaupið að stofna ný firmu
til að starfa að saltfisksinnflutningi. Það
er afar fjárfrekur atvinnuvegur, eins og
menn geta séð á því að heilir farmar
fara til eins manns og hann getur jafn-
vel haft tvo á floti í einu. Vita það og
allir, að hann er seldur gegn staðgreiðslu,
sem það er kallað, þegar fiskurínn er
greiddur gegn framvísun farmskírteina i
London. Útflytjendur heima hafa um-
boðsmenn hér syðra, sem sjá um og
ganga frá öllum samningum, bæði um
verð, tegund og gæði. Þegar kaupsamn-
ingur er undirskrifaður, verður inuflytj-
andinn þegar að sjá um greiðsluna. Skeð-
ur hún þannig, að innflytjandinn fær
viðskiptabanka sinn til að leggja fé á
reikning í einhverjum banka í London.
Leggur hann fyrir þennan banka sem
við getum kallað Barclays Bank, að greiða