Ægir - 01.02.1933, Qupperneq 18
60
ÆGIR
svo úr öllu bralli, að smákaupmenn hafa
ekki verið í sífeldri angist út af því að
fiskur sá, sem keyptur hefur verið dag-
inn áður, falli ekki svo í verði að hann
skaðist á kaupunum.
1 símskeytum heim hef ég þó varað
við að lögfesta Fisksölusambandíð, enda
ættu önnur ráð að duga, til að ná þeim
hagsbótum, sem lögskipuð samvinna
mundi færa mönnum. ókosturinn við að
lögfesta er sá, að hvað lítið sem á milli
hæri slíkrar einkasölu og innflytjenda
hér, mundi það verða talið meira eða
minna opinbert mál, og hann hefði til-
hneigingu til að hlaupa með öll sín
klögumál í ríkisstjórnina hér og heimta
að hún tæki málsstað hans. Hefur það
og verið eitt af helztu árásarefnum á
Sölusambandið, að það sé þvingunarsíofn-
un til að halda uppi ónáttúrlega háu
verði og hefur mörgum orðum verið eytt
að því í Italíu, að sanna, að ríkið standi
á bak við það. Þar sem svo virðist, sem
Norðmenn muni koma upp einkasölu
hjá sér, mun byggilegra fyrir okkur að
sjá hversu henni verður tekið af inn-
flytjendum. Þeir hafa og sendisveitir sín-
ar í helztu markaðslöndunum, sem hafa
það hlutverk að bera blak af þeim ef á
þá er ráðist, og mundu að sjálfsögðu
halda uppi vörnum bæði í blöðunum og
beint við stjórnarvöldin. Hafa þeir því
betri aðstöðu, en við sem mundum eiga
slíkt undir dönskum mönnum, sem auð-
vitað þekkja ekki til hvernig málum er
háttað á íslandi og geta þeir verið ágæt-
ismenn þar fyrir.
Hvernig sem samvinnunni verður hátt-
að í framtíðinni, þurfum við að reyna
að hafa meira vald á framleiðslunni, en
nú. Líklega verður framtíðarskipulagið
á fiskveiðum okkar það, að frysta verð-
mætasta fískinn, helzt um borð í skip-
unum, herða ruslið, svo að það sé ekki
að flækjast fyrir, en salta stóran þorsk
og löngu. Verðum við þá að finna út
hve mikið hver markaður þolir, og verka
að eins það, sem nauðsynlegt er handa
honum, því fæstir markaðir þola stórar
sveiflur á framboðinu.
En auk skipulags á sölunni verðum
við að treysta á vandvirkni hvers ein-
staks, sem vinnur við verkunina, til að
gera framleiðsluvörur okkar svo vel úr
garði, að engir standi okkur þar á sporði.
Án góðrar vöru er fótunum kippt und-
an hinu fullkomnasta söluskipulagi.
Virðingarfyllst
Helgi P. Briem.
Aths. Til skýringar á niðurlagi þessar-
ar skýrslu hr. Helga P. Briem. þar sem
hann talar um »að herða ruslið«, skal
það tekið fram, að frá honum hefur ný-
lega komið löng skýrsla um harðfisk-
verkun, þar sem hann leggur til að Is-
lendingar taki upp slíka verkun að nokkru
leyti, eins og Norðmenn, en sökum
þrensla i Ægi, hefur ekki verið hægt að
birta þar enn þá þessa skýrslu hr. Helga
Jarðslaginn.
SUýrsla til Fiskifélags Islands.
I.
Það er löngu kunnugt orðið, að í salt-
blöndum getur lifað mesti urmull af smá-
verum, meira að segja í sterkustu salt-
blöndum, sem hægt er að framleiða (mett-
uðum saltbl.). Þetta á bæði við saltblönd-
ur þær, sem til eru í náttúrunni (t. d.
saltvötn) og saltblöndur, sem gerðar eru
af mannavöldum, annaðhvort við salt-
vinnslu eða hirðingu matvæla (pækill).