Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.2009, Page 3

Skinfaxi - 01.08.2009, Page 3
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3 Sumarið 2009 verður ungmennafélög- um ógleymanlegt fyrir margra hluta sakir. Fyrir utan það mikla starf sem unnið er hjá sambandsaðilum UMFÍ voru fjölmörg verkefni í gangi á vegum hreyfingarinnar. 26. Landsmót UMFÍ var haldið á Akur- eyri dagana 11.–13. júlí sl. Mótið var jafn- framt 100 ára afmælismót Landsmótanna. Í tilefni afmælisins var sett upp sögusýn- ing um mótin á Amtsbókasafninu sem var ágætlega sótt. Jafnframt var frum- sýnd á sömu sýningu kvikmynd sem segir sögu Landsmótanna. Ég er þess fullviss að þeir sem sóttu 26. Landsmótið á Akureyri, hvort sem um keppendur eða gesti var að ræða, hafi upplifað stórkostlegt mót. Það var hrein- lega allt sem vann með okkur að því að gera mótið ógleymanlegt. Veðrið lék við mótsgesti, metþátttaka var í íþrótta- keppnum og fjöldi gesta á mótinu hefur aldrei verið meiri. Íþróttamannvirkin og aðstaðan eru með því betra sem þekkist hér á landi og eru Akureyrarbæ til mikils sóma. Aðstaðan kemur til með að nýtast í framtíðinni, bæði heimamönnum og íþróttahreyfingunni í heild, til æfinga og í keppni. Skipulagning og framkvæmd mótsins var framkvæmdaaðilum þess, UFA og UMSE, með stuðningi Akureyrar- bæjar, til mikillar fyrirmyndar. Finna mátti hinn eina sanna ungmennafélagsanda svífa yfir vötnum og hvar sem maður kom var fullt af fólki að fylgjast með því sem fram fór, brosandi og glatt í sinni. Sá ánægjulegi atburður átti sér stað í tengslum við 26. Landsmótið að söfnun- inni „Á rás með Grensás“ var hleypt af stað í orðsins fyllstu merkingu. Ofurhlaup- arinn Gunnlaugur Júlíusson hljóp frá Reykjavík til Akureyrar á sex dögum og lauk hlaupinu við setningu mótsins. Safn- aði hann áheitum meðan á hlaupinu stóð. UMFÍ stóð að undirbúningi hlaups- ins ásamt Gunnlaugi og RÁS 2 og hélt utan um söfnunina. Það var einstaklega ánægjulegt að taka þátt í þessu verkefni sem samrýmist svo vel markmiði hreyf- ingarinnar, „Ræktun lýðs og lands“. 12. Unglingalandsmót UMFÍ fór fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Mótið tókst mjög vel og var framkvæmda- aðilanum, UMSS, með stuðningi Sveitar- félagsins Skagafjarðar, til mikils sóma. Veðrið hefði mátt leika betur við móts- gesti, en það virtist ekki hafa mikil áhrif á þátttökuna í mótinu sem hefur aldrei verið meiri, hvort heldur um var að ræða keppendur eða gesti. Eins og á Landsmót- inu sveif ungmennafélagsandinn yfir vötnum og var mikil gleði og ánægja ríkj- andi á meðal mótsgesta. Keppnisaðstaða á Sauðárkróki á engan sinn líka hér á landi. Íþróttamannvirki, Hús frítímans, tjaldsvæði og þjónustuaðilar eru nánast á sama punktinum, í miðbæ Sauðárkróks. Forseti Íslands og ráðherrar ásamt fjölda annarra góðra gesta heiðruðu móts- gesti með nærveru sinni á báðum mótun- um sem var einstaklega ánægjulegt. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var haldinn í annað sinn í sumar, nú á sex stöðum á landinu, sem er fjölgun frá árinu áður. Þátttakendur voru einnig fleiri sem segir okkur að skólinn er að ná athygli. Í skólan- um er aðaláhersla lögð á kennslu í frjáls- um íþróttum, en auk þess er farið í sund, leiki, óvissuferðir og haldnar kvöldvökur. Ljóst er að skólinn gegnir mikilvægu hlut- verki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar, enda styðja fjöl- margar rannsóknir þá fullyrðingu, að ung- menni, sem stunda skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf, leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Velferðarsjóður barna veitti styrki til þeirra einstaklinga sem sóttu skólann til að greiða niður þátttöku- Framtíðin er björt Formaður UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir gjaldið, en innifalið í því var kennsla, fæði og gisting. Ungmennaráð hefur verið starfandi innan UMFÍ í nokkur ár og hefur starf- semi þess verið í stöðugri þróun. Í ráðið hafa valist öflugir einstaklingar sem eru góðir fulltrúar ungu kynslóðarinnar. Ráð- ið fundar reglulega og kemur með tillög- ur að verkefnum og öðru, sem það vill vinna að, til stjórnar UMFÍ. Ráðið hefur m.a. komið að Leiðtogaskólanum, ung- mennavikum NSU, Landsmóti og Ungl- ingalandsmóti, ungmennaráðstefnum og námskeiðum, auk þess að taka þátt í erlendum samskiptum sem snúa að ungu fólki, útbúa kynningarefni ráðsins og standa fyrir kynningum og skemmtiferð- um fyrir ungt fólk sem vill skemmta sér saman án vímuefna. UMFÍ er samstarfsaðili Forvarnadags- ins í ár eins og undanfarin þrjú ár. Dag- urinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands og er helgaður nokkrum heilla- ráðum sem geta forðað börnum og ungl- ingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Ráð- in eru þau að fjölskyldan eyði að minnsta kosti klukkustund saman á dag, ungling- ar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og æsku- lýðsstarfi og fresti því að neyta áfengis þar til þeir hafi lögaldur til. Sé farið eftir þessum ráðum aukast líkurnar á því að unglingar hefji ekki neyslu fíkniefna. Nýlokið er 46. þingi UMFÍ og þar voru teknar ákvarðanir sem marka starf hreyf- ingarinnar næstu tvö árin. Framtíðin er björt hjá hreyfingunni og spennandi tímar fram undan sem verður gaman að upplifa. Íslandi allt! Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.