Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Hollvinasamtök Grensásdeildar og
Edda Heiðrún Backman leikkona tóku
þann 28. júlí s.l. á móti því söfnunarfé
sem safnaðist í tengslum við hlaup
Gunnlaugs Júlíussonar frá Reykjavík til
Akureyrar. Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, afhenti söfnunarféð sem
nam samtals 1356 þúsundum króna.
UMFÍ skipulagði hlaupið ásamt Gunn-
laugi sjálfum. Með hlaupinu vildi Gunn-
Til vinstri: Frá
afhendingunni
sem fram fór í
garðinum á
Grensásdeild-
inni. Til hægri:
Gunnlaugur
hleypur inn á
leikvanginn á
Akureyri.
Á RÁS FYRIR GRENSÁS
Söfnunarfé afhent á Grensásdeild
laugur vekja athygli á fjársöfnun fyrir
Grensásdeild sem Edda Heiðrún Back-
man ýtti úr vör í sumar. Verkefnið ber
heitið „Á rás fyrir Grensás“. Gunnlaugur
var þar með fyrsti maðurinn til að taka
á rás fyrir Grensás, en fleiri bættust í
hópinn þegar leið á sumarið.
Ofurhlauparinn Gunnlaugur Júlíusson
gerði sér lítið fyrir og hljóp frá Reykjavík
til Akureyrar í tengslum við Landsmót
UMFÍ. Hlaupið var jafnframt til minning-
ar um Jón H. Sigurðsson, hlaupara frá
Úthlíð. Gunnlaugur hljóp vegalengdina
á sex dögum, en hann lagði af stað frá
útvarpshúsinu við Efstaleiti kl. 09:00 að
morgni sunnudagsins 5. júlí, og lauk
hlaupinu á mótssetningu Landsmótsins
á föstudagskvöldinu 10. júlí.
Á 46. sambandsþingi
Ungmennafélags Íslands,
sem haldið var í Reykja-
nesbæ 10.–11. október
s.l., var Helga Guðrún Guðjónsdóttir
endurkjörin formaður UMFÍ. Í aðal-
stjórn voru kosin, auk Helgu, þau
Björg Jakobsdóttir, UMSK, Björn Ár-
mann Ólafsson, UÍA, Einar Haraldsson
Keflavík, Örn Guðnason, HSK, Eyrún
Harpa Hlynsdóttir, HSV og Garðar
Svansson, HSH. Í varastjórn voru kosin
Ragnhildur Einarsdóttir, USÚ, Haraldur
Þór Jóhannsson, UMSS, Gunnar
Gunnarsson, UÍA og Einar K. Jónsson,
Vesturhlíð. Garðar, Ragnhildur, Einar
Kristján og Gunnar koma ný inn í
stjórn. Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar
stjórnar, sem haldinn var í Reykjanes-
bæ 11. október, var Björg Jakobsdóttir
kosin varaformaður, Örn Guðnason
ritari og Björn Ármann Ólafsson gjald-
keri. Í framkvæmdastjórn voru kosin
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Björg
Jakobsdóttir og Einar Haraldsson, og
Eyrún Harpa Hlynsdóttir til vara.
Ný stjórn Ungmennafélags Íslands
Fremri röð frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Einar
Haraldsson, Björg Jakobsdóttir og Örn Guðnason. Aftari röð frá vinstri: Sæmundur Runólfson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, Haraldur Þór Jóhannsson, Einar K. Jónsson, Ragnhildur Einarsdóttir og Garðar
Svansson. Á myndina vantar Björn Ármann Ólafsson.