Skinfaxi - 01.08.2009, Síða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Við erum
alveg í
skýjunum
„Við erum alveg í skýjunum með hvað
allt gekk vel á Unglingalandsmótinu. Þátt-
ur sjálfboðaliða vó þar þungt, en án þeirra
hefði okkur ekki tekist svona vel upp. Ég
vil nota tækifærið og þakka fyrir framlag
þeirra til mótsins. Ennfremur öllum þátt-
takendum og gestum fyrir frábæra daga
á mótinu, en allir lögðust á eitt að gera
mótið sem best úr garði,“ sagði Sigurjón
Þórðarson, formaður Ungmennasambands
Skagafjarðar, í samtali við Skinfaxa.
Sigurjón sagði að fjöldi þátttakenda
hefði farið fram úr björtustu vonum.
„Við vorum fyrirfram að gera okkur
vonir um 1000 keppendur, en það fór svo
að þeir urðu yfir 1500. Þetta var aldeilis
frábært og ekki annað hægt en að vera
sáttur og ánægður. Veðrið slapp til og var
með ágætum flesta dagana. Raunar var
veðrið miklu betra en spáð hafði verið.
Það er eins og oft hefur verið sagt að
12. Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki
Á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki
voru afhjúpaðir fjórir bautasteinar sem
eru minnisvarðar um þau tvö Landsmót
og tvö Unglingalandsmót sem hafa verið
haldin á Sauðárkróki. Landsmótin voru
haldin 1971 og 2004 og Unglingalands-
mótin 2004 og núna 2009. Með þessum
steinum vill ungmennafélagshreyfingin
sýna Sveitarfélaginu Skagafirði og íbúum
þess þakklæti sitt fyrir að hafa haldið
þessi fjögur mót með svo myndarlegum
hætti og um leið þakka gott samstarf.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað-
ur UMFÍ, sagði af þessu tilefni það væri
heiður að fá fyrir hönd hreyfingarinnar að
afhenda sveitarfélaginu þessa minnis-
varða til minningar um það dugmikla og
kröftuga starf sem hefur verið í Skaga-
Sigurðarbikarinn
afhentur UMSS
Í mótslok á Unglingalandsmótinu
á Sauðárkróki afhenti Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Sig-
urðarbikarinn í annað sinn. Bikarinn
var í fyrsta skipti afhentur í fyrra en
hann var gefinn til minningar um Sig-
urð Geirdal, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra UMFÍ. Gefendur bikarsins eru
þeir Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrver-
andi formaður UMFÍ, og Jónas Ingi-
mundarsson, fyrsti formaður Ung-
mennafélagsins Þórs í Þorlákshöfn
sem stofnað var 1960. Bikarinn skal
afhentur í mótslok því héraðssam-
bandi sem heldur Unglingalandsmót
hverju sinni.Bikarinn verður því í varð-
veislu UMSS fram að næsta móti.
Sigurjón Þórðarson,
formaður UMSS:
þessi mót hafa svo sannarlega sannað
gildi sitt. Ég er farinn að hlakka til móts-
ins á Grundarfirði næsta sumar,“ sagði
Sigurjón Þórðarson.
Í alla staði mjög sáttir
Halldór Halldórsson, formaður ungl-
ingalandsmótsnefndar á Sauðárkróki,
tók undir orð Sigurjóns og sagði fram-
kvæmdaaðila ekki geta annað en verið
ánægða með hvernig til tókst.
„Við erum í alla staði mjög sáttir og ég
heyrði engan mann kvarta yfir einu né
neinu. Það var góð stemning og skemmti-
legur bragur á gestunum. Við vorum
reynslunni ríkari frá mótinu 2004 og það
kom að góðum notum við undirbúning
þessa móts. Fyrirvarinn var skammur eins
og allir vita, en allir sem komu að undir-
búningnum lögðust á eitt og verkefnið
gekk upp í alla staði,“ sagði Halldór
Halldórsson.
Fjórir bautasteinar afhjúpaðir
Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, formaður UMFÍ,
og Gréta Sjöfn Guðmunds-
dóttir, forseti sveitar-
stjórnar Skagafjarðar.
Sigurjón Þórðar-
son, formaður
UMSS.
firði. Það væri komandi kynslóðum hvatn-
ing til að halda því kefli áfram á lofti.