Skinfaxi - 01.08.2009, Síða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Það gekk allt eins og í sögu og þegar
upp er staðið og mótið er skoðað í heild
sinni erum við afar stolt. Allir aðilar voru
mjög sáttir við hvernig hlutirnir gengu
fyrir sig. Veðurguðirnir voru okkur hlið-
hollir enda veðrið einstakt alla mótsdag-
ana. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað
fólk er tilbúið að leggja á sig til að gera
þetta sem best úr garði. Að mótinu komu
fleiri hundruð sjálfboðaliða og var fram-
tak þeirra ómetanlegt. Það er í raun alveg
ótrúlegt að sjá hvað sjálfboðaliðarnir
leggja á sig,“ sagði Kristján Þór Júlíusson,
„Að okkar mati gekk Landsmótið vel
fyrir sig, bæði hvað undirbúning varðaði
og eins framkvæmdin. Landsmótsnefnd-
in vann afar gott starf og svo lék veðrið
við okkur allan tímann. Ekki má gleyma
aðstöðunni sem byggð var upp og mun
nýtast öllum íþróttafélögum hér á svæð-
inu í framtíðinni. Þessi aðstaða er einhver
sú fullkomnasta á landinu og hún á eftir
að efla allt íþróttastarf hér fyrir norðan,“
sagði Sigurður H. Kristjánsson, formaður
Ungmennasambands Eyjafjarðar, í spjalli
við Skinfaxa.
„Mótshaldarar eru mjög ánægðir með
hvað allt tókst vel á Landsmótinu hjá okk-
ur í sumar. Það er ekki annað að heyra en
að allir séu mjög sáttir og það er mjög
ánægjulegt. Setningin var látlaus og gekk
snurðulaust fyrir sig og var að því leyti til
mjög góð. Fólk lagði sig fram við að allt
gengi upp, bæði þeir sem stjórnuðu og
þeir sem tóku þátt í opnuninni,“ sagði
Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, for-
maður Ungmennafélags Akureyrar.
26. Landsmót UMFÍ á Akureyri
Kristján Þór Júlíusson, formaður landsmótsnefndar:
Ótrúlega gaman að sjá hvað
fólk er tilbúið að leggja á sig
formaður landsmótsnefndar, í spjalli við
Skinfaxa eftir Landsmótið á Akureyri.
Kristján Þór sagði áberandi hvað góður
bragur hefði verið á öllu sem þarna fór
fram.
„Það lagðist allt á eitt að gera þetta
mót eftirminnilegt. Viðtökur fólks voru
góðar og við erum mjög þakklátir fyrir
þær. Eftir þetta mót sé ég ekki annað en
að Landsmótin eigi svo sannarlega fram-
tíðina fyrir sér. Mótið í sumar sýnir ekki
annað,“ sagði Kristján Þór.
Sigurður H. Kristjánsson, formaður UMSE:
Skipulagið nánast fullkomið
Sigurður sagði að aldrei yrði fullþakkað
það starf sem landsmótsnefndin, greina-
stjórar og sjálfboðaliðar lögðu fram í
aðdraganda mótsins og meðan á mótinu
stóð. Skipulagið hjá þessum aðilum var
nánast fullkomið.
„Það sýndi sig og sannaði að veðrið
leikur stórt hlutverk á svona móti. Yfir-
bragðið á öllu verður allt miklu léttara og
allir eru í góðu skapi. Mótið á Akureyri
sýndi það að mótin eiga framtíð fyrir sér,“
sagði Sigurður.
Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, formaður UFA:
Getum litið glaðir um öxl
Guðmundur Víðir sagði að það hefði
verið mjög notalegt fyrir alla að vera úti
við enda hefði veðrið afskaplega gott
alla dagana.
„Við getum litið glaðir um öxl og verið
þakklátir fyrir hvað allt tókst vel. Við
Íslendingar erum þannig að oft eru hlut-
irnir ekki tilbúnir fyrr en á síðustu stundu
en þeim mun ánægjulegra er líka þegar
allt tekst vel,“ sagði Guðmundur Víðir.