Skinfaxi - 01.08.2009, Síða 21
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 21
Í tengslum við Landsmót UMFÍ, sem
haldið var á Akureyri í sumar, var efnt til
alþjóðlegs námskeiðs í viðburðastjórnun.
Á námskeiðinu, sem fór fram í húsakynn-
um Menntaskólans á Akureyri, tóku þátt
um 30 manns sem komu víðs vegar að úr
heiminum. Ungmennafélag Íslands stóð
að undirbúningi námskeiðsins ásamt
„Mikil hrifning að fá að taka þátt í
setningarathöfn Landsmótsins“
alþjóðlegu æskulýðssamtökunum ISCA
sem UMFÍ er aðili að. Þátttakendur í nám-
skeiðinu fylgdust með viðburðum á
Landsmótinu, til hliðar við fyrirlestra og
annað sem viðkom námskeiðinu. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók þátt
í umræðum í lok námskeiðs.
Hinir erlendu þátttakendur komu til
Þátttakendur
námskeiðs í
viðburða-
stjórnun
ganga inn á
leikvanginn
við setningu
Landsmótsins
á Akureyri.
Akureyrar með beinu flugi frá Kaupmanna-
höfn mánudaginn 6. júlí og héldu síðan
af landi brott sunnudaginn 12. júlí.
Gunnar Sigfússon, sem sæti á í ung-
mennaráði UMFÍ, kom að námskeiðinu
ásamt starfsmönnum UMFÍ, þeim Sigurði
Guðmundssyni og Guðrúnu Snorradóttur.
„Námskeiðið gekk að öllu leyti mjög
vel og lýstu þátttakendurnir sérstaklega
yfir mikilli ánægju. Þeir voru mjög hrifnir
af því að fá að taka þátt í setningarathöfn
Landsmótsins, en hópurinn allur saman
gekk í einni fylkingu inn á völlinn. Það
kom einnig þátttakendum á óvart hve
mótið var stórt í sniðum. Þeir bjuggust
ekki við að svona stórt mót yrði haldið í
ekki stærra bæjarfélagi,“ sagði Gunnar
Sigfússon í spjalli við Skinfaxa.
Gunnar sagði að farið hefði verið með
hópinn til Mývatns og í hvalaskoðun til
Húsavíkur.
„Þátttakendurnir voru alveg í skýjun-
um þegar þeir héldu af landi brott og
sögðu ferðina hingað til lands ógleym-
anlega,“ sagði Gunnar Sigfússon.
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
Alþjóðlegt námskeið í viðburðastjórnun: