Skinfaxi - 01.08.2009, Qupperneq 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
70 manns tóku þátt í fjölskyldugöngu
HSK á Hvolsfjall við Hvolsvöll í góðu veðri
11. júní s.l. Göngustjóri var Lárus Bragason,
sagnfræðingur frá Miðhúsum, en hann er
uppalinn og búsettur í brekkum fjallsins.
Hann er greinilega mjög fróður og var
gaman að heyra hann segja sögur af
svæðinu, allt frá landnámsöld.
Eins og í öðrum fjölskyldugöngum HSK
var farið með póstkassa og gestabók upp
á fjallið. Í byrjun október verður farið og
náð í gestabókina og fá heppnir göngu-
garpar, sem verða dregnir út, óvæntan
glaðning frá HSK og UMFÍ.
Eins og undanfarin ár tók Guðni Guð-
mundsson á Þverlæk þátt í göngunni og
hann ritaði eftirfarandi vísu í gestabókina.
Gjarnan um sveitir til gamans skunda.
Á göngu víkur streitu-skollinn.
Á bungu leita yndisstunda.
Engan þreytir Hvollinn.
Jón M. Ívarsson, söguritari HSK, var
meðal þeirra sem tóku þátt og hann setti
saman eftirfarandi vísu á leiðinni.
Ekki var þetta erfið ganga
á götunni reyndi ég að hanga.
Eftir göngu ekki langa
upp ég komst á stall.
Leit ég yfir lága velli.
(Lárus sagði frá í hvelli.)
Hógvært fólk er Hvols- á velli
að kalla þetta fjall!
Eftir gönguna bauð Sögusetrið á Hvols-
velli göngufólki upp á veitingar og þátt-
takendum gafst auk þess tækifæri til að
skoða setrið. HSK þakkar göngustjóra og
Sögusetrinu fyrir framlag þeirra.
UMSB stóð fyrir spenn-
andi göngum í sumar
Þyrill var fjall UMSB árið 2009 í verkefn-
inu Fjölskyldan á fjallið. Það má segja að
fjallið hafi verið fjölsótt í sumar því að alls
höfðu 89 göngumenn ritað nafn sitt í
gestabók, sem var á fjallinu í sumar, þegar
náð var í bókina þann 5. september. Fjall-
ið Þyrill er auðvelt uppgöngu. Röskir
göngumenn ganga upp á fjallið á innan
við klukkutíma en hæfilegt er að ætla sér
3–4 tíma upp og niður aftur með stoppi
til að njóta útsýnisins sem er feiknamikið
í góðu verðri.
Alls voru farnar 9 gönguferðir á vegum
göngunefndar UMSB í sumar. Flestar voru
farnar kl. 20 og tóku um 3 tíma. Gengið
var á Vikrafell og var þá farið í laugardegi.
Göngurnar voru flestar vel sóttar og voru
tæplega 30 manns í þeim fjölmennustu.
Úr hreyfingunni
Fjölskyldan á fjallið:
Flestar göngurnar vel sóttar
Fjölskylduganga HSK á Hvolsfjall.
Göngugarpar UMSB hvíla lúin bein á tindi Þyrils.
Göngugarpar UMSB skoða útsýnið á tindi Vikrafells.