Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 11
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11 Ferðafélag Íslands FJÖLBREYTT STARFSEMI Í YFIR 80 ÁR Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem hefur það markmið að hvetja landsmenn til að ferðast og fræðast um landið. Áhugi á gönguferðum, fjallgöngum og útiveru hefur aldrei verið meiri og er mikið líf og fjör í starfseminni. Ferðafélagið leggur sig fram við að mæta þörfum breiðs hóps með miklu úrvali ferða. Í ferðaflóru félagsins er að finna allt frá söguferðum um grösugar sveitir til erfiðra jöklaferða. Í ferða áætlun félagsins geta flestir fundið eitt hvað við sitt hæfi. Á 82 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en 8.500 ferða með yfir 200.000 þátttakendum. Það eru allir velkomnir í Ferðafélagið og njóta félagsmenn sérkjara, bæði í ferðum, skálum og í fjölda verslana. Auk þess fá allir félagsmenn árbókina senda heim á hverju ári og er það hluti af árgjaldinu. Árbókin er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Auk árbókanna hefur Ferðafélag Íslands staðið að útgáfu handhægra fræðslu- og upplýsingarita um ferðamál, þjóðfræði og sögu landshluta. Félagsstarfið hefur í gegnum tíðina einkennst af miklu sjálfboða starfi. Félagar hafa unnið að byggingaframkvæmdum, farið vinnu ferðir í skála eða í frágangsferðir, stikað og unnið að uppbyggingu göngu leiða, unnið við brúargerð og margt fleira. Í staðinn hafa þeir fengið fríar ferðir, fæði og félagsskap. Félagið hefur unnið markvisst að samgöngubótum, lagt akvegi og brúað ár. Það hefur haft samstarf við sveitarfélög um landgræðslu, náttúruvernd og uppbyggingu svæða eins og t.d. í Landmannalaugum, á Þórsmörk og Emstrum. Sæluhús Ferðafélags Íslands og deilda félagsins úti um land eru þægilegir áningarstaðir á ferðalagi um óbyggðir Íslands. Þau eru á 37 stöðum víðs vegar um landið og getur allur almenningur nýtt þau óháð aðild að félaginu. www.fi.is

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.