Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 29
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29 Úr hreyfingunni 100 ára afmælisþing HSK í Þingborg: Guðríður Aadnegard kjörin formaður HSK Á héraðsþingi HSK, sem haldið var í Þingborg 13. febrúar sl., var Guðríður Aadnegard kosin formaður HSK. Er hún fyrsta konan til að gegna þessu embætti í 100 ára sögu HSK. Gísli Páll Pálsson, sem verið hefur formaður frá 2003, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. „Starfið leggst vel í mig, en það er alveg ljóst að það fer enginn í sporin hans Gísla Páls. Ég er viss um að stjórnin mun vinna vel saman og álaginu verður dreift á fleiri í stjórninni. Það er blómlegt íþrótta- og menningarlíf innan héraðssambandsins og gott fólk sem gaman verður að vinna með. Það er mikil virkni í öllu starfi hér á svæðinu,“ sagði Guðríður Aadnegard, ný- kjörinn formaður HSK, í samtali við Skin- faxa. Um 100 manns sóttu þingið sem tókst í alla staði mjög vel, enda móttökur heima- manna frábærar. Þingið var jafnframt 100 ára afmælisþing, en HSK var stofnað í Hjálmholti 14. maí árið 1910. Á þinginu var gefin út glæsileg 88 blað- síðna ársskýrsla um starfsemi héraðssam- bandsins á liðnu ári, skreytt með 130 myndum. Í skýrslunni kemur fram að starfið var þróttmikið, bæði innan HSK og aðildarfélaga þess. Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Örn Guðnason, ritari UMFÍ, veittu Guð- mundi Kr. Jónssyni, fyrrverandi formanni HSK, gullmerki UMFÍ og Helga S. Haralds- syni, Umf. Selfoss, starfsmerki UMFÍ. Miklar og góðar umræður fóru fram í fjórum starfsnefndum þingsins. Fjöldi tillagna varð til í nefndum, en alls var 31 tillaga samþykkt á þinginu. Sigurður Sigurðarson, hestaíþróttamað- ur úr Geysi, var kosinn Íþróttamaður HSK árið 2009, en kjörið fór nú fram í 44. sinn. Gísla Páli, fráfarandi formanni, voru þökkuð frábær störf fyrir sambandið. Fékk hann jafnframt mikið lof fyrir það sem hann hefur áorkað fyrir ungmennafélags- hreyfinguna. Helga Fjóla Guðnadóttir úr Geysi gaf ekki kost á sér til endurkjörs í varastjórn. Stjórn HSK skipa: Guðríður Aadnegard, formaður, Hansína Kristjánsdóttir, gjald- keri, Bergur Guðmundsson, ritari, Ragnar Sigurðsson, varaformaður og Fanney Ólafsdóttir, meðstjórnandi. Varamenn eru Helgi Kjartansson, Ásta Laufey Sig- urðardóttir og Lára Bergljót Jónsdóttir. Gísli Páll Pálsson, fráfarandi for- maður HSK, ásamt Guðríði Aadnegard, ný- kjörnum for- manni. Valgerður Auðunsdóttir, Karl Gunnlaugs- son, Jóhannes Sigmundsson og Hafsteinn Þorvaldsson fengu gullmerki HSK, en það var afhent var í fyrsta skipti á þinginu. Til hægri: Sigurður Sigurðarson, íþrótta- maður HSK 2009. Gísli Páll ásamt fulltrúum þeirra félaga sem fengu viðurkenningar fyrir foreldra- starf, unglingastarf og stigahæsta félag innan HSK 2009. Sigurður Sigurðarson, Hestamanna- félaginu Sleipni, var kjörinn íþrótta- maður HSK 2009.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.