Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Úr hreyfingunni
Ársþing USAH á Blönduósi:
Góð starfsemi innan félaga í USAH
Ársþing USAH var haldið 13. febrúar sl.
á Blönduósi. Góð mæting var á þingið frá
félögum innan sambandsins. Á þinginu
voru á dagskrá hefðbundin aðalfundar-
störf; skýrsla stjórnar, reikningar sam-
bandsins og samþykktar tillögur vegna
næsta starfsárs.
Gestir frá UMFÍ voru Haraldur Þór
Jóhannsson, varastjórnarmaður, og Ómar
Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ.
UMFÍ veitti þeim Jóhanni Guðmunds-
syni, Unnari Agnarssyni, Páli Ingþóri Krist-
inssyni og Magnúsi B. Jónssyni starfsmerki
UMFÍ fyrir störf þeirra, en þeir hafa setið í
ritnefnd Húnavöku í kringum 30 ár ásamt
Ingibergi Guðmundsyni, en hann hafði
fengið starfsmerki áður. Húnavaka er
héraðsrit sem USAH gefur út. Í vor kemur
út 50. árgangur af Húnavökuritinu. Mikil
og góð starfsemi er innan félaga USAH.
Til vinstri að ofan: Haraldur Þór Jóhanns-
son, varastjórnarmaður UMFÍ, lengst til
vinstri, og Aðalbjörg Valdimarsdóttir,
formaður USAH, ásamt þremur af fjórum
sem fengu starfsmerki UMFÍ.
Til hægri að ofan: Nýkjörin stjórn USAH.
Til vinstri: Stefán Hafsteinsson, íþrótta-
maður USAH, ásamt Ingibjörgu
Valdimarsdóttur, formanni USAH.
Íþróttamaður USAH 2009 var kjörinn
Stefán Hafsteinsson, en hann hefur stað-
ið sig frábærlega í fótbolta, þótt ungur sé.
Jófríður Jónsdóttir hætti í stjórn USAH,
en í hennar stað kom Greta Björg Lárus-
dóttir. Í stjórn USAH eru nú: Aðalbjörg
Valdimarsdóttir, formaður, Greta Björg
Lárusdóttir, varaformaður, Þórhalla Guð-
bjartsdóttir, gjaldkeri, Sigrún Líndal, ritari,
og Guðrún Sigurjónsdóttir, meðstjórn-
andi.
Þing UDN haldið í Tjarnarlundi:
Finnbogi endurkjörinn formaður UDN
Þing UDN var haldið að
Tjarnarlundi 16. mars sl.
UDN bauð nágrönnum
sínum, HSH, UMSB og
HSS, að sitja þingið.
Þingið var ágætlega sótt. Góður rekstur
er hjá UDN og var sambandið rekið með
hagnaði.
Stjórn UDN lagði til að starfsmaður yrði
hjá sambandinu allt árið en núna er ein-
ungis starfsmaður hluta úr ári. Góðar
umræður voru um hlutverk UDN, starfs-
manns UDN og hlutverk sambandsaðila.
Samþykkt var að fela stjórn að endur-
skoða lög sambandsins og lottóreglugerð
og leggja fyrir næsta sambandsþing.
Garðar Svansson frá UMFÍ og HSH flutti
kveðjur frá, formanni og stjórn UMFÍ, og
sagði frá því helsta sem er að gerast hjá
samtökunum.
Guðmundur Sigurðsson og Kristján
Guðmundsson frá UMSB greindu frá því
helsta sem er að gerast í undirbúningi
Frá þingi UDN í
Tjarnarlundi.
vegna Unglingalandsmóts 2010 sem
haldið verður í Borgarnesi.
Finnbogi Harðarson var endurkjörinn
formaður. Herdís Reynisdóttir var kjörin
í stjórn fyrir Herdísi Ernu Matthíasdóttir
sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi
stjórnarsetu. Aðrir í stjórn eru Svanborg
Guðbjörnsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir og
Baldur Gíslason.
„Starfsemin hjá okkur er með svipuðum
hætti og áður. Íþróttastarf er meira á vorin
og sumrin og nú fer að styttast í að það
fari á fulla ferð. Samt sem áður er mikið
að gerast hjá börnum og unglingum hér
á sambandssvæðinu á veturna. Við getum
ekki annað en verið bjartsýn á framhald-
ið hjá okkur,“ sagði Finnbogi Harðarson,
formaður UDN.