Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2010, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.05.2010, Blaðsíða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ferðafélag Íslands FJÖLBREYTT STARFSEMI Í YFIR 80 ÁR Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem hefur það markmið að hvetja landsmenn til að ferðast og fræðast um landið. Áhugi á gönguferðum, fjallgöngum og útiveru hefur aldrei verið meiri og er mikið líf og fjör í starfseminni. Ferðafélagið leggur sig fram við að mæta þörfum breiðs hóps með miklu úrvali ferða. Í ferðaflóru félagsins er að finna allt frá söguferðum um grösugar sveitir til erfiðra jöklaferða. Í ferða áætlun félagsins geta flestir fundið eitt hvað við sitt hæfi. Á 82 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en 8.500 ferða með yfir 200.000 þátttakendum. Það eru allir velkomnir í Ferðafélagið og njóta félagsmenn sérkjara, bæði í ferðum, skálum og í fjölda verslana. Auk þess fá allir félagsmenn árbókina senda heim á hverju ári og er það hluti af árgjaldinu. Árbókin er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Auk árbókanna hefur Ferðafélag Íslands staðið að útgáfu handhægra fræðslu- og upplýsingarita um ferðamál, þjóðfræði og sögu landshluta. Félagsstarfið hefur í gegnum tíðina einkennst af miklu sjálfboða starfi. Félagar hafa unnið að byggingaframkvæmdum, farið vinnu ferðir í skála eða í frágangsferðir, stikað og unnið að uppbyggingu göngu leiða, unnið við brúargerð og margt fleira. Í staðinn hafa þeir fengið fríar ferðir, fæði og félagsskap. Félagið hefur unnið markvisst að samgöngubótum, lagt akvegi og brúað ár. Það hefur haft samstarf við sveitarfélög um landgræðslu, náttúruvernd og uppbyggingu svæða eins og t.d. í Landmannalaugum, á Þórsmörk og Emstrum. Sæluhús Ferðafélags Íslands og deilda félagsins úti um land eru þægilegir áningarstaðir á ferðalagi um óbyggðir Íslands. Þau eru á 37 stöðum víðs vegar um landið og getur allur almenningur nýtt þau óháð aðild að félaginu. www.fi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.