Skinfaxi - 01.05.2010, Blaðsíða 41
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 41
Úr hreyfingunni
Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar í Ásgarði:
Hrefna Gerður Björnsdóttir formaður UMSS
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA
Ársþing UMSS var haldið
25. mars sl. í Árgarði. Þetta
var afmælisþing, ef svo
má að orði komast. UMSS
varð 100 ára þann 17. apríl
sl. en ákveðið hefur verið
að halda upp á tímamótin
í haust. Þingið fór vel fram
og var vel sótt. Siglinga-
klúbbnum Drangey var veitt aðild að UMSS.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Haraldur Þór Jóhannsson, í vara-
stjórn UMFÍ, voru fulltrúar UMFÍ á þinginu.
Helga Guðrún afhenti UMSS áletraðan
veggskjöld í tilefni afmælisins.
Sigurjón Þórðarson lét af formennsku en
við tók Hrefna Gerður Björnsdóttir. Núver-
andi stjórn Ungmennasambands Skaga-
fjarðar skipa: Hrefna Gerður Björnsdóttir,
formaður, Hjalti Þórðarson, Sigurjón Leifs-
son, Sigmundur Jóhannesson og Sigurgeir
Þorgeirsson.
Starfsmerki UMFÍ fengu þeir Snorri
Styrkársson og Stefán Öxndal Reynisson.
Efri mynd til vinstri: Nýr formaður
UMSS, Hrefna Gerður Björnsdóttir.
Efri mynd til hægri: Frá afhendingu
starfsmerkja UMFÍ. Frá vinstri: Stefán
Öxndal Reynisson, Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, Snorri Styrkársson
og Haraldur Þór Jóhannsson.
Neðsta mynd: Frá þingi UMSS.