Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1936, Side 18

Ægir - 01.06.1936, Side 18
13G Æ G I R ár, fyrst til vöruflutninga og síðar á fisk- veiðar. Stærð þess var 4G,4 lestir. Ekki er óhngsandi, að í þvíhafiverið einhverjir munir frá fyrri timum, sem erindi hefðu átt á safn. Þjóðhátiðarmánuðinn, ágúst 1874, var »Tjalfe« hleypt af stokkunum í Dan- mörku og taka eigendur við hinu ný- smíðaða skipi, 23. september s. á. Elzl ailra íslenzkra skipa, sem enn ganga lil fiskveiða, er »Geysir« frá Bíldu- dal, B. A. 140, Ilvorki í skipaskrá Sjó- mannaalmanaksins eða í elztu skipa- skrám ríkisins finnst aldur skipsins; er þess fyrst getið 1877. Árið 1873 kom »Geysir« fyrst lil Hafnarfjarðar frá Dan- mörku, hlaðinn kaupmannsvöru (Styk- gods) og kevpti kaupmaður Jes Christ- ensen það og hélt því nokkur ár á fisk- veiðum. »Geysir« var skonnorta, 29 lest- ir að stærð og var lengi talin hrað- skreiðast skip hér um slóðir. Það var nokkuð gamalt er það kom, hafði áður verið gufuskip og' sáust þess glögg merki, en hvar það hafði siglt, sem slíkt, er ó- kunnugt. Það var eikarskip er það kom hingað fyrst, en nú er ekki skýrt frá efni í skipaskránni, sem getur verið margs- konar, eftir margar viðgerðir og hreyt- ingar, á liðnum árum. Fyrst var skipið rennileg skonnorta, síðar var siglingu breytt í kútter og var þá gamli »Geysir« lítt þekkjanlegur, svo var settur i hann mótor og enn þraukar hið gamla skip, sem eftir því sem næst verður komist, er einhversstaðar milli 70 og 75 ára gam- alt og enn við veiðar. Ilinn 12. júní þ. á., fór fram skoðun á ms. »Njáli« G. Iv. 123, eign samvinnu- fél. Björg í Hafnarfirði. »Njáll« er 36 lestir að stærð og kom hingað lil lands (Hafnarfjarðar) í júli 1883 og var svo- nefnd jaktskonnorta. Nú er sigling lík og á kútter. Hann er smíðaður, úr danskri eik, í Nysted í Danmörku, sama árið og hann kom; keyptu Seltirningar hann og höfðu á þorskveiðum í mörg ár; hafa margir merkir menn verið skipstjórar á »Njáli« og fyrstur allra Jón .Tónsson frá Melshúsum. Við skoðun reyndist skipið traust og hvergi fúið og er nú 53 ára gamalt. Mótor mun hafa verið settur í »Njál« árið 1906; var það 28 ha. Alpha- vél og var sama vélin í skipinu um 20 ára skeið. Þegar vélin var sett í, var það eign Miljónafélagsins, semhéltskip- inu úti til vöruflutninga. »Queen Mary«. Hinn 27. maí sl. lagði hið nýja risa- skip »Queen Mary« úr liöfn frá Eng- landi, áleiðis lil New-York, í hina fyrstu ferð. Ferðin gekk vel, en hláa bandið öðlaðist skipið ekki og varla við að hú- ast, því vélar verða að liðkast, áður en farið er að pína slik skip og við öflug- an keppinaut að leíla, þar sem hið frakk- neska risaskip »Normandie« er, sem enn á bláa bandið. »Queen Mary« er talin að vera 80,6 þúsund lestir að stærð, en »Normandie« er 82,799 lestir. Við tækifæri verður birt mynd af skip- inu, i Ægi, en vart mun verða auðið að lýsa því, svo að nokkru gagni komi, því það er eitl af þeim furðuverkum heims- ins, sem menn verða að sjá og skoða lengi, ef eínhver hugmynd á að fást um smíði og tilhögun. ý Framkv.stj. Þórarinn Böðvarsson í Hafnaríirði, andaðist liinn 5. júní. Hann varvel látinn sæmdarmaður. Jarð- aður var hann hinn 17. júni, að við- stöddu fjölmenni.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.