Ægir - 01.06.1936, Qupperneq 18
13G
Æ G I R
ár, fyrst til vöruflutninga og síðar á fisk-
veiðar. Stærð þess var 4G,4 lestir.
Ekki er óhngsandi, að í þvíhafiverið
einhverjir munir frá fyrri timum, sem
erindi hefðu átt á safn.
Þjóðhátiðarmánuðinn, ágúst 1874, var
»Tjalfe« hleypt af stokkunum í Dan-
mörku og taka eigendur við hinu ný-
smíðaða skipi, 23. september s. á.
Elzl ailra íslenzkra skipa, sem enn
ganga lil fiskveiða, er »Geysir« frá Bíldu-
dal, B. A. 140, Ilvorki í skipaskrá Sjó-
mannaalmanaksins eða í elztu skipa-
skrám ríkisins finnst aldur skipsins; er
þess fyrst getið 1877. Árið 1873 kom
»Geysir« fyrst lil Hafnarfjarðar frá Dan-
mörku, hlaðinn kaupmannsvöru (Styk-
gods) og kevpti kaupmaður Jes Christ-
ensen það og hélt því nokkur ár á fisk-
veiðum. »Geysir« var skonnorta, 29 lest-
ir að stærð og var lengi talin hrað-
skreiðast skip hér um slóðir. Það var
nokkuð gamalt er það kom, hafði áður
verið gufuskip og' sáust þess glögg merki,
en hvar það hafði siglt, sem slíkt, er ó-
kunnugt. Það var eikarskip er það kom
hingað fyrst, en nú er ekki skýrt frá efni
í skipaskránni, sem getur verið margs-
konar, eftir margar viðgerðir og hreyt-
ingar, á liðnum árum. Fyrst var skipið
rennileg skonnorta, síðar var siglingu
breytt í kútter og var þá gamli »Geysir«
lítt þekkjanlegur, svo var settur i hann
mótor og enn þraukar hið gamla skip, sem
eftir því sem næst verður komist, er
einhversstaðar milli 70 og 75 ára gam-
alt og enn við veiðar.
Ilinn 12. júní þ. á., fór fram skoðun
á ms. »Njáli« G. Iv. 123, eign samvinnu-
fél. Björg í Hafnarfirði. »Njáll« er 36
lestir að stærð og kom hingað lil lands
(Hafnarfjarðar) í júli 1883 og var svo-
nefnd jaktskonnorta. Nú er sigling lík
og á kútter. Hann er smíðaður, úr danskri
eik, í Nysted í Danmörku, sama árið og
hann kom; keyptu Seltirningar hann og
höfðu á þorskveiðum í mörg ár; hafa
margir merkir menn verið skipstjórar á
»Njáli« og fyrstur allra Jón .Tónsson frá
Melshúsum. Við skoðun reyndist skipið
traust og hvergi fúið og er nú 53 ára
gamalt. Mótor mun hafa verið settur í
»Njál« árið 1906; var það 28 ha. Alpha-
vél og var sama vélin í skipinu um 20
ára skeið. Þegar vélin var sett í, var
það eign Miljónafélagsins, semhéltskip-
inu úti til vöruflutninga.
»Queen Mary«.
Hinn 27. maí sl. lagði hið nýja risa-
skip »Queen Mary« úr liöfn frá Eng-
landi, áleiðis lil New-York, í hina fyrstu
ferð. Ferðin gekk vel, en hláa bandið
öðlaðist skipið ekki og varla við að hú-
ast, því vélar verða að liðkast, áður en
farið er að pína slik skip og við öflug-
an keppinaut að leíla, þar sem hið frakk-
neska risaskip »Normandie« er, sem enn
á bláa bandið.
»Queen Mary« er talin að vera 80,6
þúsund lestir að stærð, en »Normandie«
er 82,799 lestir.
Við tækifæri verður birt mynd af skip-
inu, i Ægi, en vart mun verða auðið að
lýsa því, svo að nokkru gagni komi, því
það er eitl af þeim furðuverkum heims-
ins, sem menn verða að sjá og skoða
lengi, ef eínhver hugmynd á að fást um
smíði og tilhögun.
ý Framkv.stj. Þórarinn Böðvarsson
í Hafnaríirði, andaðist liinn 5. júní.
Hann varvel látinn sæmdarmaður. Jarð-
aður var hann hinn 17. júni, að við-
stöddu fjölmenni.